Íslenski boltinn

Umfjöllun: Sextán ára strákur stóð sig eins og hetja í mögnuðum Stjörnusigri

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Halldór Orri Björnsson, leikmaður Stjörnunnar.
Halldór Orri Björnsson, leikmaður Stjörnunnar. Mynd/Valli

Stjarnan vann 2-1 sigur á Fylki í uppgjöri spútnikliðanna á gervigrasinu í Garðabæ í kvöld. Öll mörkin komu í fyrri hálfleik en Björn Pálsson skoraði sigurmarkið á 34. mínútu.

Stjörnumenn létu það ekki aftra sér að spila manni færri í 80 mínútur í kvöld og sextán ára varamarkvörður liðsins, Davíð Guðjónsson, kom inn á í sínum fyrsta meistaraflokksleik og stóð sig eins og hetja.

Steinþór Freyr Þorsteinsson kom Stjörnunni yfir á 4. mínútu þegar hann lyfti boltanum yfir Fjalar Þorgeirsson, markvörð Fylkis, sem var kominn ím skógarhlaup út úr markinu.

Valur Fannar Gíslason jafnaði úr vítaspyrnunni sem var dæmd um leið og markvörðurinn Kjartan Ólafsson var rekinn útaf með rautt spjald.

Bjarni Jóhannsson, þjálfari Stjörnunnar þurfti því að senda sextán ára strák í markið í sínum fyrsta meistaraflokksleik. Davíð Guðjónsson fór í vitlaust horn í vítinu en óx síðan ásmeginn eftir það. Það var ekki nóg með að hann kæmi inn á óundirbúinn og við erfiðar aðstæður þá þurfti hann einnig að standa í marki á móti vindinum allan fyrri hálfleikinn.

Fylkismenn tóku litla áhættu í leik sínum þrátt fyrir að vera orðnir manni fleiri og allar hættulegustu sóknir hálfleiksins voru áfram Stjörnumanna þrátt fyrir að þeir væri manni færri.

Sigurmarkið kom eftir frábært upphlaup Steinþórs Freys Þorsteinssonar sem lék upp að endamörkum og inn í teiginn og lagði síðan boltann út á Björn Pálsson sem skoraði með þrumuskoti sitt fyrsta mark í úrvalsdeildinni.

Stjörnumenn átti áfram margar góðar sóknir í seinni hálfleik en þegar leið á hálfleikinn þá jókst pressa gestanna úr Árbænum. Það var þó sama hvað Fylkismenn reyndi, Stjörnumenn börðust vel og lokuðu svæðunum og Davíð greip síðan inn í á hárréttum tíma þegar til þess þurfti.

Steinþór Freyr Þorsteinsson var allt í öllu í sóknaraðgerðum Stjörnunmanna og duglegur að stríða stöðum varnarmönnum Fylkis sem gekk síðan einnig illa að verjast stórhættulegum föstum leikatriðum Garðabæjarliðsins.

Steinþór skoraði fyrra markið og lagði síðan það seinna upp auk þess að búa til mun fleiri góð færi fyrir félaga sína. Davíð var maður leiksins, Daníel Laxdal, fyrirliði, var baráttumaður leiksins en Steinþór var besti maður vallarsins.

Stjörnumenn hafa því unnið alla þrjá heimaleiki sína og fjóra af fyrstu fimm leikjum sínum í Pepsi-deildinni í sumar. Þetta var aftur á móti fyrsta tap Fylkismanna í sumar.

Stjarnan-Fylkir 2-1

1-0 Steinþór Freyr Þorsteinsson (4.)

1-1 Valur Fannar Gíslason, víti (11.)

2-1 Björn Pálsson (34.)

Stjörnuvöllur. Áhorfendur: 738

Dómari: Vilhjálmur Alvar Þórarinsson (7)

Skot (á mark): 17-8 (9-4)

Varin skot: Kjartan 0, Davíð 4 - Fjalar 7.

Horn: 8-6

Aukaspyrnur fengnar: 17-10

Rangstöður: 0-8

Stjarnan (4-5-1):

Kjartan Ólafsson -

Guðni Rúnar Helgason 7

Tryggvi Bjarnason 7

Daníel Laxdal 8

Hafsteinn Rúnar Helgason 7

Steinþór Freyr Þorsteinsson 8

Jóhann Laxdal -

(10., Davíð Guðjónsson 8) - Maður leiksins -

Birgir Hrafn Birgisson 7

(84., Andri Sigurjónsson -)

Björn Pálsson 7

Halldór Orri Björnsson 6

Þorvaldur Árnason 6

(90., Bjarki Páll Eysteinsson -)

Fylkir(4-3-3):

Fjalar Þorgeirsson 6

Andrés Már Jóhannesson 6

Kristján Valdimarsson 5

Einar Pétursson 5

Tómar Þorsteinsson 3

(46., Þórir Hannesson 5)

Ásgeir Börkur Ásgeirsson 4

(64., Ólafur Ingi Stígsson 5)

Valur Fannar Gíslason 5

Halldór Arnar Hilmisson 4

Ingimundur Níels Óskarsson 4

Pape Mamadou Faye 3

(46., Kjartan Andri Baldvinsson 5)

Kjartan Ágúst Breiðdal 6

Leikurinn var í beinni á Boltavaktinni og má lesa lýsingu leiksins hér: Stjarnan - Fylkir.








Tengdar fréttir

Hetja Stjörnumanna í kvöld: Ég var að deyja úr stressi

Davíð Guðjónsson, sextán ára strákur, kom inn í mark Stjörnunnar eftir tíu mínútur, stóð sig eins og hetja og átti mikinn þátt í 2-1 sigri liðsins á Fylki. Davíð varði nokkrum sinnum mjög vel og greip hvað eftir annað vel inn í leikinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×