Alblóðugur og grunaður um að hafa brotið 76 rúður 1. janúar 2009 09:30
Töluvert fleiri verkefni komu inn á borð lögreglunnar á höfuðborgarsvðinu í nótt eða 210 talsins miðað við 170 mál í fyrra. 5 tilkynningar um eld / bruna allt minniháttar, svo virðist sem kveikt hafi verið í bifreið í Fossvoginum en rúða var brotin í bifreiðinni og steinn inni í henni þá var tilkkynnt um íkveikjur í rusli á fjórum stöðum í borginni. 9 líkamsárásir tilkynntar til lögreglu allar voru þær eftir stympingar í miðborginni og enginn með alvarlega áverka eftir. Minniháttar áverkar og sært stolt. 3 flugeldaslys voru tilkynnt. • Í Garðbæ sprakk blys í höndum 6 ára barns ekki vitað um meiðsl. • Þá sprakk flugeldaterta er karlmaður ætlaði að kveikja í henni, fór á sld með áverka á hendi • Þá sprakk flugeldur er verið var að kveikja í honum við hús í Kópavogi, meiðsl minniháttar Karlmaður á þrítugsaldri sem hafði verið að klifra í vinnupöllum við Hallgrímskirkju virðist hafa dottið niður og var fluttur á sld, talinn vera undir áhrifum áfengis. Meiðsl minniháttar. Innbrotsþjófur gripinn glóðvolgur í húsi í austurborginni en húsráðandi er var að koma heim heyrði þrusk innandyra og hringdi til lögreglu. Lögregla handtók manninn inni í íbúðinni þarsem hann var búinn að taka til verðmæti og búa til flutnings. Tók móti lögreglu grímuklæddur með Klaufhamar og hníf, hann var yfirbugaður í snatri og gistir nú fangageymslur. Hann var í annarlegu ástandi og á honum fundust ætluð fíkniefni. Þá var aðili handtekinn í Hafnarfirði með um 20 stk af E töflum og smáræði af hvítu efni ætluðu amfetamíni, hjá honum fundust loftskammbyssa og loftriffill sem voru haldlögð. Þá hreinsaði lögregla út úr samkvæmi í iðnaðarhúsnæði í Kaplakrika um 150 manns vísað út, Engin leyfi voru fyrir samkvæminu og húsnæðið ekki tekið út með tilliti til brunavarna. 36 minniháttar skemmdarverk voru tilkynnt allt frá því að póstkassar voru sprengdir (sem virðist hefðbundið um áramót) og upp í rúðubrot. Við Réttarholtsskóla var aðili í annarlegu ástandi handtekinn og grunaður um að hafa brotið 76 rúður í skólanum, hann fannst blóðugur á höndum með hamar í hönd. Þá var undir morgun maður laminn í miðborginni og fluttur meðvitunarlaus á Slysadeild og tveir ætlaðir gerendur handteknir. Annars má segja að gleðskapur næturinnar hafi farið fram með hefðbundum erli hjá lögreglunni, mikið um smáútköll, s.s. tilkynningar um samkvæmishávaða og þess háttar í heimahúsum. En allt virðist þetta nú hafa gengið stóráfallalaust fyrir sig.
Mest lesið „Þeir munu hengja mig“ Erlent Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Innlent Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Innlent Niðurskurður hjá Rúv upp á 10 til 15 stöðugildi Innlent Ekki sé lýðræðislegt að halda formanni Eflingar í myrkrinu Innlent Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Innlent Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Innlent Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Innlent „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Innlent Kveiktu bál á bílastæði Innlent Fleiri fréttir Skora á stjórnvöld að tryggja fasta viðveru þyrlu á Akureyri Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Gjaldtaka um nýjan Hornafjarðarveg hefst á morgun Dapurlegt að sjá á eftir kvöldfréttum Sýnar Fundur utanríkismálanefndar og ráðherra ræðir stöðu fjölmiðla Niðurskurður hjá Rúv upp á 10 til 15 stöðugildi Trausti nýr starfsmaður þingflokks Miðflokksins Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Ekki sé lýðræðislegt að halda formanni Eflingar í myrkrinu Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Kveiktu bál á bílastæði Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Grindavík Ultra strandaði við varnargarðana Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Hafi skynjað um nokkra hríð að já-hliðin væri ekki í sókn Mesta kjörsókn í sögu lýðveldisins Piparúða beitt við handtöku í Hafnarfirði „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Lögreglan í Vestmannaeyjum óskar eftir vitnum Nei-hliðin vann á ástríðunni „Landsbyggðin okkar stendur sterk” Ríkisstjórnin virði niðurstöðuna og taki málið af dagskrá Ferðalagið með ruslið ætti ekki að lengjast þó þjónustan færist fjær Niðurstaðan sé töluvert áfall fyrir ríkisstjórnina Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Segir niðurstöðuna áfall fyrir ríkisstjórnina Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Lokatölur úr Suðvesturkjördæmi: Fullvissuðu þjóðina um að svarið væri nei Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Sjá meira