Guðjón: Það verða engir farþegar hjá Crewe á næstu leiktíð 6. maí 2009 17:00 Nordic Photos/Getty Images
Leikmenn Crewe Alexandra gangast í dag undir ítarleg þolpróf hjá Guðjóni Þórðarsyni og félögum áður en þeir fara í sumarleyfi. Crewe þurfti að bíta í það súra epli að falla úr C-deildinni um síðustu helgi og Guðjón hefur strax lagt línurnar fyrir næstu leiktíð í D-deildinni. Leikmenn eiga að mæta til æfinga þann 29. júní nk. og Guðjón hefur varað þá við því að mæta þangað í góðu standi - ella þurfi þeir að leita sér að annari vinnu. "Leikmennirnir eru búnir að vera í þolprófum í vikunni og nú vitum við meira um líkamlegt ástand þeirra. Við höfum séð niðurstöður sem komu okkur á óvart og sumir leikmanna okkar komu illa út úr þessu og þurfa að bæta sig," sagði Guðjón. "Þeir verða að koma hingað í sumar í miklu betra standi en þeir eru í núna og það mun hafa afleiðingar í för með sér ef svo verður ekki. Menn verða að vera í góðu standi þegar þeir eru að spila. Þeir eru heppnir að fá borgað fyrir að spila fótbolta og verða að færa fórnir í samræmi við það," sagði Guðjón. "Það er lágmark að atvinnumenn séu í formi og þeir fá strangar leiðbeiningar til að fylgja í sumar. Tölurnar ljúga ekki og menn geta ekki átt von á því að sleppa auðveldlega frá vinnu sinni hér lengur. Ef menn geta ekki skaffað það sem við þurfum frá þeim, mega þeir fara. Ég hef ekki efni á að vera með neina farþega hér á næstu leiktíð," sagði Guðjón.
Enski boltinn Mest lesið Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Íslenski boltinn Hitti nýjustu stjörnu íslenska körfuboltans í skólanum Körfubolti Lygilegur uppgangur: „Besta botnlangaaðgerð í sögunni“ Fótbolti Vondur dagur varð enn verri fyrir fyrirliða Man. United Enski boltinn Vann erfitt utanvegahlaup þrátt fyrir brákað rifbein Sport Heims- og Ólympíumeistari í maraþoni féll á lyfjaprófi Sport Leik lokið: Víkingur-Fram 2-2 | Víkingar rétt sluppu við súra sigurhátíð Íslenski boltinn Verður Arsenal í vandræðum í fjarveru Saka? Enski boltinn Komu lykilleikmanni fljótt til varnar Körfubolti Dagskráin: Lokaumferð Bestu með Doc Zone og Messan í einum pakka Sport Fleiri fréttir De Zerbi kátur eftir leik: „Nú er þetta fullmótað lið“ Tottenham vann tíu Chelsea-menn á Brúnni Lagði upp jöfnunarmark á sama tíma og hann missti markametið Andri Lucas skoraði tvö mörk í sigri á Hollywood-liðinu Arsenal vann og náði Manchester City að stigum Aston Villa - Manchester City 2-1 | Fyrstu töpuðu stig City í deildinni Verður Arsenal í vandræðum í fjarveru Saka? Vondur dagur varð enn verri fyrir fyrirliða Man. United Nottingham Forest endaði taphrinuna „Manchester United er og hefur alltaf verið stærra heldur en einhver einstaklingur“ Conte þverneitar sögusögnum um samningsviðræður Fær samúð frá stjórninni vegna meiðsla Gaf leikmönnum Man United frídag eftir útreiðina í Como Svaf ekki í margar nætur áður en hann tók ákvörðunina um Arsenal Sky Sports: Carrick mun stýra Man. Utd gegn Bournemouth Vill fá annan þjálfara eins og Amorim til að hreinsa til Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Nagelsmann efstur á lista verði Carrick rekinn Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Snýr Trent aftur til Liverpool? Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Þrýstingur á þjálfarastólinn fer að aukast Ýmislegt fyrir stuðningsmenn Tottenham til að fagna Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Loksins sigur hjá Tottenham Sjá meira