„Við erum ekki einu sinni reiðir lengur, við erum bara orðnir þreyttir“ Valur Grettisson skrifar 21. júlí 2009 12:26 Snorri Magnússon formaður landssambands lögreglumanna. „
Niðurskurðurinn eru 51,1 milljón og því verður ekki náð nema með stórfelldum niðurskurði á yfirvinnu og með því að segja starfsfólki upp," segir Snorri Magnússon, formaður Landssambands lögreglumanna en Vísir sagði frá áhyggjufullum lögreglumanni í morgun sem sendi fréttastofu bréf þar sem hann lýsti erfiðu starfsumhverfi lögreglumanna. Snorri segir starfsumhverfi lögreglumanna vera orðið slæmt. Spurður hvort hann kannist við að ekki séu til DVD-diskar til þess að taka upp myndskeið í gegnum svokallaðan Eye-witness búnað segist hann hafa heyrt af því.Þá segir ennfremur í bréfinu að lögreglumennirnir væru áhyggjufullir yfir því að vera einir í bíl þegar kemur að útköllum. Snorri segist skilja þessar áhyggjur enda aldrei hægt að vita hvernig sakleysislegustu útköll geti þróast. Snorri segir það óásættanlegt að lögreglumenn séu sendir einir á vettvang.Þá kom einnig fram í bréfinu að lögreglubifreið hefði bilað við eftirför á sunnudagskvöldið þar sem bíll endaði út í skurði í Hvalfirði eftir að honum var þröngvað þangað af lögreglubifreið. Þar að auki var fullyrt að bíllinn hefði gert það oft.Snorri segist ekki kannast við það en tekur fram að niðurskurður bitni jafnt á tækjum og ástandi ökutækja sem og fólki.„Það er niðurskurður á öllum sviðum. Þetta á líka við ríkislögreglustjóra sem rekur bílana," segir Snorri.Spurður hvort almenningur megi búast við fullri þjónustu þrátt fyrir niðurskurð segir Snorri það af og frá.„Þeir geta alls ekki tryggt fulla þjónustu með þessu áframhaldi og hvað þá eftir þann niðurskurð sem er boðaður," segir Snorri. Hann áréttar að Landsamaband lögreglumanna geri sér fulla grein fyrir því að nú séu niðurskurðartímar.„Það eru erfiðir tímar. En vandinn er sá að við höfum verið að skera niður í fjöldamörg ár," segir Snorri og bendir á að þrátt fyrir uppgangstíma fyrir kreppu þá hafi framlag til lögreglunnar alltaf haldið sinni krónutölu. Á meðan breyttist verðlag og verðþróun og aldrei fékk embættið meira að hans sögn. Hann segir það ekkert annað en niðurskurð.Spurður hvað sé til ráða segir Snorri a það þurfi augljóslega að auka framlög til lögreglunnar. Hann segir að það megi vera að það virðist vera bjartsýnt á tímum þar sem ríkissjóður er jafn skuldsettur og raun ber vitni. Hann segir að þá sé best að láta embættið í friði.„Það er búið að skera fituna og vöðvana í burtu. Það er ekkert eftir nema beinagrindin," segir Snorri.Mikið álag hefur verið á lögreglumönnum á höfuðborgarsvæðinu og þá sérstaklega á meðan búsáhaldabyltingin stóð sem hæst.Snorri segir að það hafi verið súrt að taka á sig reiði almennings á meðan lögreglumenn séu að upplifa það sama enda fyrirséð að uppsagnir verða að veruleika um áramótin.Hann segir að nú séu víðsjáverðir tímar og margar erlendar rannsóknir sýni fram á að það sé beinlínis glapræði að hrófla við löggæslunni á slíkum tímum.Og lögreglumenn eru orðnir langþreyttir að sögn Snorra.„Við erum ekki einu sinni reiðir lengur, við erum bara orðnir þreyttir," segir hann um starfsumhverfi lögreglumanna eins og það er í dag.
Mest lesið Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Fleiri fréttir Ísland ýmist í Meistaradeildinni eða um miðja aðra deild Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China setur beint flug í sölu Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Austurfrétt liggur niðri vegna netárásar Tekið fram að svipting starfsleyfis eigi ekki að vera refsing Umræðan hafi „aftur og aftur snúist um getgátur, misskilning og útúrsnúninga“ Stúlkan fannst heil á húfi „Við hlaupum bara hraðar eftir því sem gestunum fjölgar“ Lögreglan á Norðurlandi eystra lýsir eftir fjórtán ára stúlku Bleikjuvinnslunni breytt í brugghús Lögregla og björgunarsveitir leita að manneskju á Akureyri „Þarf að hafa afleiðingar ef fólki er lógað af heilbrigðisstofnun“ Mikilvægt að draga lærdóm af gerð gatnamótanna „Vald flugstjórans er náttúrulega alveg klárt“ Segir málið verða að hafa afleiðingar fyrir Skúla Tómas Vestmannaeyjabær áfrýjar til Landsréttar Segir Dag plata með úreltri skýrslu Leiðrétting fréttar: Það sem Þorgerður sagði í raun Sjá meira