Geir ósáttur við brotthvarf bankaráðsformanna Jón Hákon Halldórsson skrifar 12. febrúar 2009 15:24 Geir Haarde formaður Sjálfstæðisflokksins er ósáttur við brotthvarf bankaráðsformannanna.
Það er óskiljanlegt að ríkisstjórnin skyldi stugga við formönnum bankaráða Kaupþings og Glitnis, að mati Geirs H. Haarde, formanns Sjálfstæðisflokksins. Geir gerði brotthvarf þeirra að umtalsefni í utandagskrárumræðu um efnahagsmál á þingi nú á fjórða tímanum. Geir sagði mikilvægt að stöðugleiki næðist í rekstri bankanna. Það væri sérlega óskiljanlegt að stuggað hefði verið við formönnum bankaráðanna í ljósi þess að bankaráð nýju bankanna hefðu verið skipuð í góðri samvinnu við þáverandi stjórnarandstöðuflokka og Vinstri grænir hefðu notið góðs af því. Magnús Gunnarsson, formaður bankaráðs Kaupþings, og Valur Valsson, formaður bankaráðs Glitnis, hafa sagt af sér störfum. Þeir hafa sagt að pólitískur vilji sé til þess að gera breytingar á stjórn bankanna eftir að ríkisstjórnarskipti áttu sér stað. Eftir að bréf þeirra, þar sem þeir tilkynntu um afsögn sína, var gert opinbert óskaði Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra eftir því að þeir myndu starfa áfram. Í það minnsta framyfir aðalfundi bankanna í apríl. Þeir hyggjast ekki verða við óskum Steingríms J. Sigfússonar. Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra þvertók hins vegar fyrir það við þingumræðuna að um pólitískar hreinsanir sé að ræða. Formenn bankaráðanna hafi átt frumkvæðið að brotthvarfi þeirra. Hann spurði jafnframt hvort að sjálfstæðismenn hefðu meiri áhyggjur af af atvinnu eins til tveggja flokksgæðinga heldur en atvinnuleysi 13 - 14 þúsund manns.
Mest lesið Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Ný nefnd hefur náðað þrjá Innlent Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Erlent Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Innlent Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Erlent Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Erlent Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Innlent Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Innlent Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Innlent Fleiri fréttir Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið „Blóðmassinn svartur sem hel“ Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Kallar formann VR „ómerkilegan popúlista“ „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Sjá meira