Innlent

Einstakt að enginn farist í sjóslysi

Varðskip Landhelgisgæslunnar.
Varðskip Landhelgisgæslunnar.

Nýliðið ár var einstakt að því leyti að enginn maður lét lífið í sjóslysi á íslenskum skipum. Vegna náinna tengsla við hafið og mikilvægis sjósókna frá upphafi, er jafnvel hægt að leiða að því líkur að 2008 hafi verið fyrsta árið frá landnámi án banaslysa á sjó, segir í tilkynningu frá Siglingastofnun Íslands.

Í tilkynningunni segir að á síðustu öld hafi farist í sjóslysum og drukknað í sjó, ám og vötnum yfir 4 þúsund manns samkvæmt upplýsingum frá Hagstofunni. Á síðari hluta aldarinnar hafi banaslysum á sjó farið mjög fækkandi miðað við það sem áður var og sú þróun hafi haldið það sem af er þessum áratug.

Siglingastofnun segir að skýringar framfaranna séu margvíslegar. Skipakostur hafi batnað, öryggiskröfur til skipa hafi aukist en einnig hafi sjómönnum fækkað frá seinni hluta síðustu aldar. Undanfarin ár hafi vitund um mikilvægi fræðslu til sjómanna og slysavarna eflst en það sé ekki síst breytt hugarfar sjófarenda sem beri að þakka þessa ánægjulegu þróun.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×