Cesc Fabregas, fyrirliði Arsenal, skoraði eina markið í æfingaleik liðsins á móti þýska liðinu Hannover 96 í kvöld.
Mark Fabregas kom strax á 9. mínútu leiksins eftir gott hlaup Spánverjans snjalla og undirbúning frá þeim Robin Van Persie og Nicolas Bendtner.
Það vakti athygli að Arsene Wenger spilaði með þriggja manna framlínu í leiknum en þeir Andrei Arshavin, Van Persie og Bendtner voru allir í byrjunarliðinu í leiknum.