Innlent

Varað við slæmu veðri við Vatnajökul

Björgunarsveitarmenn hafa staðið í ströngu.
Björgunarsveitarmenn hafa staðið í ströngu.

Veður er nú afar slæmt norðan Vatnajökuls og beinir Slysavarnafélagið Landsbjörg þeim tilmælum til ferðafólks að vera ekki á ferð þar nema brýna nauðsyn beri til.

Leitað hefur verið aðstoðar björgunarsveita vegna ferðafólks af svæðinu, meðal annars var göngumaður nálægt Gæsavötnum í vandræðum. Óttast var um hjólreiðamann í Dyngjufjalladal og fólk sat fast í bíl við Kistufell.

Björgunarsveitirnar Stefán og Þingey og Hjálparsveit skáta í Reykjadal voru kallaðar út en áður en þær komu á staðinn hafði aðstoð borist frá fólki sem var á svæðinu. Þeim var því snúið til baka.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×