Innlent

Hafdís Helga Ólafsdóttir skipuð skrifstofustjóri

MYND/EOL

Fjármálaráðherra hefur skipað Hafdísi Helgu Ólafsdóttur, lögfræðing, í stöðu skrifstofustjóra lögfræðisviðs fjármálaráðuneytisins. Embættið var auglýst 25. september síðastliðinn og bárust alls ellefu umsóknir um stöðuna.

Hafdís Helga lauk embættisprófi í lögfræði frá Háskóla Íslands árið 1992 og meistaraprófi í Evrópurétti frá Háskólanum í Lundi árið 2005. Hún hefur jafnframt sótt fjölda námskeiða um stjórnun og stjórnendaþjálfun undanfarin ár. Hafdís Helga starfaði síðast sem aðallögfræðingur Samkeppniseftirlitsins.

Áður hafði hún m.a. starfað sem aðallögfræðingur Alþingis, forstöðumaður og aðstoðarforstöðumaður nefndasviðs þingsins og nefndaritari nokkurra fastanefnda. Þá hefur Hafdís Helga kennt við Háskóla Íslands frá árinu 1995, þar af sem aðjúnkt frá 2005.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×