Enski boltinn

Gattuso spenntur fyrir Chelsea

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Gattuso og Ancelotti eru góðir vinir.
Gattuso og Ancelotti eru góðir vinir. Nordic Photos / AFP
Ítalinn Gennaro Gattuso hefur gefið í skyn að hann sé spenntur fyrir því að spila með Chelsea þar sem hann myndi hitta fyrir sinn gamla stjóra hjá AC Milan, Carlo Ancelotti.

Umboðsmaður Gattuso, Andrea D'Amico, segir að Gattuso hafi verið óánægður með að Ancelotti hafi yfirgefið AC Milan og farið til Chelsea. Gattuso hefur leikið með Milan undanfarinn áratug og á tvö ár eftir af núverandi samningi sínum við félagið.

„Mér líkar vel við ensku úrvalsdeildina og tel að hún myndi henta mér og mínum leikstíl vel. Ég veit ekki hvað mun gerast. Ég hef verið lengi hjá AC Milan og það væri ekki auðvelt að fara frá félaginu. Við verðum að sjá til."

„Chelsea er stórt félag en það er virkilega góð tilfinning að starfa með Ancelotti. Við höfum starfað saman undanfarin átta ár og hann er mér sem annar faðir."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×