Þóknun til lögmannsstofu alltof há 22. ágúst 2009 09:00 Gísli Tryggvason
Þóknun sem lögmannsstofan Lögmál innheimti af brunatryggingu hjá Tryggingamiðstöðinni (TM) er tæplega sjöfalt hærri en lög gera ráð fyrir. Þetta er mat Lögmanna-félagsins og talsmanns neytenda. Fréttablaðið sagði frá því á þriðjudaginn að maður sem skuldaði 1.549 krónur í brunatryggingu hjá TM fékk rukkun upp á 14.613 krónur, eftir að upphæðin fór í innheimtu. Samkvæmt nýlegri reglugerð var sett þak á innheimtuþóknanir. Ef höfuðstóll er undir 3.000 krónum má þóknun vera hæst 1.250 krónur. Ingimar Ingimarsson, framkvæmdastjóri Lögmannafélagsins, telur að í máli eins og þessu sé um milliinnheimtu að ræða og því hefði einungis mátt rukka 1.250 krónur. Með milliinnheimtu er átt við það þegar skuldari hefur fengið innheimtuviðvörun en löginnheimta ekki hafin. Gerir hann ráð fyrir að senda lögmönnum áréttingu um gildissvið nýju reglugerðarinnar sem tók gildi 1. febrúar. Segir Ingimar þetta í annað sinn sem Lögmannafélagið hafi orðið vart við misskilning lögmanna frá því að reglugerðin tók gildi. Elvar Örn Unnsteinsson, einn eigenda Lögmáls, er ósammála túlkun Lögmannafélagsins og talsmanns neytenda. Segir hann að þegar umbjóðandi hans, í þessu tilviki TM, hafi varað skuldara við þrisvar sinnum sé innheimtubréf lögmanns löginnheimta. Gísli Tryggvason, talsmaður neytenda, segir að löginnheimta sé aðeins þegar mál sé komið til sýslumanns eða dómstóla og hægt sé að grípa til úrræða eins og fjárnáms. „Ég vona að svona misskilningur eins og þessi tíðkist ekki almennt en ég hafði veður af því fyrr í vor að einhverjar lögmannsstofur kynnu að hafa misskilið þetta," segir Gísli Tryggvason sem taldi ástæðu til að leiðrétta þennan misskilning í kjölfar fréttar Fréttablaðsins á þriðjudaginn. Gísli hefur beint því til Lögmannafélagsins að minna lögmenn á gildissvið innheimtulaganna. Hægt er að skjóta málum er varða innheimtukostnað til úrskurðarnefndar lögmanna. vidir@frettabladid.is
Mest lesið Inga ætlar ekki að biðjast afsökunar Innlent Þriggja ára barn ráfaði af leikskólanum og í Bónus Innlent Fjöldi ökumanna sektaður fyrir að leggja ólöglega Innlent „Kemur af sama lager og það sem er selt í partýinu í næsta bæ“ Innlent „Það þarf enginn að vera með vopn nema sérsveitin“ Innlent Spændi upp mosann á krossara Innlent Varnarviðbragð húðarinnar að verða brún í sól Innlent Rússar virðast hafa litlar áhyggjur af hótunum Trump Erlent „Það gæti tekið bara fimmtán mínútur að kála þeim“ Innlent Fagnar áherslum ríkisstjórnarinnar í sjávarútvegi Innlent Fleiri fréttir Gísli Jóns í tveimur útköllum frá miðnætti „Það gæti tekið bara fimmtán mínútur að kála þeim“ Maðurinn er fundinn Ekki sekur um að hafa valdið dauða manns í Kiðjabergi Fagnar áherslum ríkisstjórnarinnar í sjávarútvegi Ræðukóngurinn talaði í rúman sólarhring Miklar bikblæðingar á Norðurlandi Ræðukóngur Alþingis tekinn tali og varað við bikblæðingum á þjóðvegunum Þriggja ára barn ráfaði af leikskólanum og í Bónus Varnarviðbragð húðarinnar að verða brún í sól „Það þarf enginn að vera með vopn nema sérsveitin“ Hitinn 14 til 28 stig í dag: Vara við því að skilja hundinn eftir í bílnum Fjöldi ökumanna sektaður fyrir að leggja ólöglega Akureyri skelfur vegna jarðhræringa við Grímsey Inga ætlar ekki að biðjast afsökunar Tæpur fjórðungur umræðutímans fór í veiðigjöld Þyrlan kölluð út að sækja veikan farþega á skemmtiferðakipi „Kemur af sama lager og það sem er selt í partýinu í næsta bæ“ Spændi upp mosann á krossara Netið sló út í miðborginni og Hlíðunum Bræður „moka inn“ á límónaðisölu og egg spælt á bíl Sögulegt þing, geðrof eftir meðferð og bongóblíða Dópsalar handteknir sem reyndust dvelja ólöglega á Íslandi Stjórnarandstaðan sakar forseta um alvarlegan trúnaðarbrest Mótmæltu komu „spilltrar“ der Leyen Hvetja fólk til að fara sparlega með vatn Rak landganginn í flugvélina og gerði gat Þagnarbindindi í ræðustól Alþingis Veiðigjaldafrumvarpið samþykkt „Ísland er með öruggustu löndum í heimi“ Sjá meira