Sport

Sears lánaður til Crystal Palace

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Freddie Sears í leik með West Ham.
Freddie Sears í leik með West Ham. Nordic Photos / Getty Images
Freddie Sears, nítján ára leikmaður West Ham, verður í láni hjá Crystal Palace allt næsta tímabil en félagið leikur í ensku B-deildinni.

Gianfranco Zola, knattspyrnustjóri West Ham, vill að Sears öðlist meiri leikreynslu en mörg félög í ensku B-deildinni höfðu sýnt honum áhuga.

Sears náði þó ekki að skora á síðasta tímabili með West Ham en alls kom hann við sögu í 22 leikjum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×