Sport

Bendtner vill framlengja við Arsenal

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Nicklas Bendtner í leik með Arsenal.
Nicklas Bendtner í leik með Arsenal. Nordic Photos / Getty Images

Nicklas Bendtner, danski sóknarmaðurinn í liði Arsenal, vill gjarnan framlengja samninginn sinn við félagið.

Samkvæmt heimildum enskra fjölmiðla vill Arsene Wenger, stjóri Arsenal, gjarnan bjóða Bendtner nýjan samning og sá síðarnefndi virðist tilbúinn að taka því boði.

„Það hefur verið forgangsatriði hjá mér að framlengja samninginn minn og hef ég aldrei sagt neitt annað," sagði Bendtner í samtali við danska fjölmiðla.

„Það er auðvitað gott að stjórinn hafi veitt mér stuðning og ég vonast til að vera lengi í herbúðum félagsins."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×