Vörur öðlast líf í Háskólanum 21. nóvember 2009 03:30 Siggi anton og guðbjörg „
Orkuverið er skemmtilegur vettvangur til að koma saman tveimur heimum, hönnuðum með hugmyndirnar og fólkið sem kann að virkja þær,“ segir Jóhanna Dýrunn Jónsdóttir, markaðsstjóri Athafnavikunnar, um Orkuverið sem haldið verður á Háskólatorgi á milli klukkan 15 og 17 í dag. Orkuverið er eins konar hraðstefnumót þar sem hönnuðir fá möguleika á að kynnast og tengjast viðskiptafræðingum, verkfræðingum, markaðsfræðingum eða öðrum með rekstrarreynslu. Fyrirkomulag er með þeim hætti að þátttakendur setjast tveir saman í fimm mínútur og spjalla saman. Að fimm mínútum liðnum þurfa þeir báðir að skipta um sæti. Þetta hefur verið gert nokkrum sinnum á árinu og minnist Jórunn þess að sautján manns hafi tekið þátt á síðasta stefnumótafundi. Hún minnist þess að vöruhönnuðurinn Siggi Anton hafi verið einn þeirra sem hafi náð góðum árangri á stefnumótafundi Orkuversins. Á eitt þeirra kom hann með hugmynd að veggljósinu Lucio og hitti þar viðskiptafræðinginn Guðbjörgu Jóhannsdóttur. Að Orkuverinu standa Innovit, Klak, Félag viðskipta- og hagfræðinga og Hönnunarmiðstöð Íslands. Þeir sem áhuga hafa á að taka þátt verða að mæta með kynningu á sjálfum sér þar sem fram kemur menntun, fyrri reynsla og áhugasvið. - jab
Mest lesið Svona berðu kennsl á fyrstu einkenni heilabilunar Innlent Simmi biður Söndru og sjúkraliðana afsökunar Innlent Slökkviliðsstjóri lætur af störfum eftir ábendingar Innlent Hélt um fætur eiginmannsins meðan hann sogaðist úr glugga í háloftunum Erlent Misboðið vegna ömurlegrar gyðingaandúðar Innlent Ríkið borgar brúsann vegna langdreginnar rannsóknar á árás við skólalóð Innlent Alvarlegar líkamsárásir í Reykjavík Innlent Tekur upp hanskann fyrir Lite-bjórinn Innlent „Búnir að þróa með sér spilafíkn áður en þeir byrja að veðja“ Innlent Ekki eigi að leyfa frekjukallinum að vaða uppi Innlent Fleiri fréttir Hætt að taka við reiðufé vegna innbrotahrinunnnar Tekur upp hanskann fyrir Lite-bjórinn Enn enginn grunaður um spellvirkin við Grafarvogskirkju Ekki falsaðir peningar heldur gervipeningar Íris Dröfn settur sýslumaður á Austurlandi „Miklar vendingar núna í málefnum bæjarins“ Verða höfð með í ráðum vegna niðurrifsins við Sæbraut „Lögregla á að bregðast við refsiverðri háttsemi“ Ákærður fyrir manndráp af gáleysi vegna áreksturs þar sem tveir létust Misboðið vegna ömurlegrar gyðingaandúðar Gyðingaandúð, netsala áfengis og skólahald í Grindavík Slökkviliðsstjóri lætur af störfum eftir ábendingar Simmi biður Söndru og sjúkraliðana afsökunar Tugir innbrota til rannsóknar hjá lögreglu Alvarleg líkamsárás á borði miðlægrar rannsóknardeildar „Búnir að þróa með sér spilafíkn áður en þeir byrja að veðja“ Ríkið borgar brúsann vegna langdreginnar rannsóknar á árás við skólalóð Alvarlegar líkamsárásir í Reykjavík Svona berðu kennsl á fyrstu einkenni heilabilunar Styrkt verkefni í fyrra sem spari þjóðinni 93 milljarða króna Lítil bjartsýni á úrslitastundu Ekki eigi að leyfa frekjukallinum að vaða uppi Loks fengið varanlegt heimili eftir yfir hundrað ár á Íslandi Grobba sig af stolnum trjám „Ég hélt að það erfiðasta yrði að lifa af nauðgunina sjálfa“ Óskiljanleg áfengissala, óvissa fyrir úrslitastund og úrkoman endalausa Dæmdur fyrir heimilisofbeldi en sagðist sjálfur hafa verið eins og gísl Telja Sævar hafa verið tengilið Kastriots við skipverjana „Stundum koma upp atvik“ Langflestir umsækjendur frá Úkraínu Sjá meira