Skattabreytingar í anda stefnu BSRB 21. nóvember 2009 01:45 Elín Björg Jónsdóttir Formaður BSRB óttast að óbætanlegt tjón kunni að verða á velferðarkerfinu.Fréttablaðið/vilhelm
BSRB krefst þess að ríkisstjórnin endurskoði stefnu sína í niðurskurði ríkisútgjalda. Telja samtökin ríkisstjórnina fylgja stefnu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins í þeim efnum en hún kunni að hafa í för með sér óbætanlegt tjón á velferðarkerfinu. Ályktun þessa efnis var samþykkt á aðalfundi BSRB í gær. „Ef skorið verður jafn mikið niður og verstu spár segja til um held ég að óbætanlegt tjón geti orðið á heilbrigðiskerfinu og löggæslunni," segir Elín Björg Jónsdóttir, formaður BSRB. „Það eru þeir þættir velferðarkerfisins sem eru hvað viðkvæmastir fyrir miklum niðurskurði." Ítrekað er að öflug opinber almannaþjónusta sé aldrei jafn mikilvæg og á krepputímum. BSRB segir áform ríkisstjórnarinnar um þrepaskipt skattkerfi í samræmi við stefnu þess um tekjujöfnun enda sé bótakerfi ríkisins nýtt til kjarajöfnunar. Um leið er hvatt til þess að skattlagningu verði hagað á þann veg að hún stuðli að fjölgun starfa. Svokölluðum auðlegðarskatti er fagnað en varað er við umtalsverðum hækkunum á virðisaukaskatti, vörugjöldum og tollum. „Slík skattheimta hækkar verðlag sem hefur áhrif á neysluverðsvísitöluna og leiðir til hækkunar á höfuðstól verðtryggðra lána," segir í ályktuninni. Að endingu hafnar aðalfundur BSRB alfarið öllum hugmyndum um skattlagningu inngreiðslna í lífeyrissjóði.- bþs
Mest lesið Símaupptökur úr Reykholtsmálinu: „Ekki fokking hreyfa þig eða ég mun sparka meira í þig“ Innlent Með stöðu sakbornings vegna banaslyss á Miklubraut Innlent Lúsmýið yrði alltaf verra en moskítóflugan Innlent Senda hermenn gegn glæpasamtökum í „bakgarðinum“ Erlent Lögreglumál: Sátu fastir eftir að slökkt var á parísarhjólinu Innlent Hætta sölu til Japan: Hvalkjötið nýtt í framleiðslu bætiefnis Innlent Hugmyndin góð enda hvalkjöt mun járnríkara en nautakjöt Innlent Yfirheyra bandamenn sína í NATO Erlent Evrópuvaktin 2026: Þjóðin gengur að kjörborðinu Innlent Skilti í setrinu á ensku: „Hjartanlega sammála því að við eigum ekki að hafa þetta svona“ Innlent Fleiri fréttir Hljóðupptökur, ný vínbúð og færri sturtuðu niður yfir almyrkva Alls ekki ætlað sér að ógna neinum né áreita starfsfólkið Allt gert til að stöðva birtinguna Skilti í setrinu á ensku: „Hjartanlega sammála því að við eigum ekki að hafa þetta svona“ Hjón skildu fimm ára dreng eftir í bíl: Málið á borði breskra yfirvalda Með stöðu sakbornings vegna banaslyss á Miklubraut Loka brúnni yfir Borgarfjörð í tvær nætur Um sextán þúsund greitt atkvæði utan kjörfundar Símaupptökur úr Reykholtsmálinu: „Ekki fokking hreyfa þig eða ég mun sparka meira í þig“ Hugmyndin góð enda hvalkjöt mun járnríkara en nautakjöt Ákafir þátttakendur beggja fylkinga rugli fólk viljandi í ríminu E. coli fannst í neysluvatni á Borgarfirði eystra Popúlismi í aðdraganda þjóðaratkvæðis og hvalkjöt í töfluformi Tekur við viðskiptadeild Bifrastar eftir átakavetur Engir gallar á kosningu til heimastjórnar Seyðisfjarðar Evrópuvaktin 2026: Þjóðin gengur að kjörborðinu Handtekinn vegna kannabisræktunar í Króksfjarðarnesi Bogi Ísak Nilsson er látinn Fyrsta skrefið í að kenna Íslendingum að nota fánann við fleiri tilefni Brotist inn í garnverslun í Árbæ Aðalmeðferð hefst í Reykholtsmálinu Hætta sölu til Japan: Hvalkjötið nýtt í framleiðslu bætiefnis Lögreglumál: Sátu fastir eftir að slökkt var á parísarhjólinu Lúsmýið yrði alltaf verra en moskítóflugan Viðreisn fjarlægir bænina af Facebook: „Við viljum ekki særa fólk“ Gerir upp hús hannað af Guðjóni Samúelssyni Á sjötta tug björgunarsveitarfólks kom að björguninni Ekki fleiri tilkynnt innbrot síðan 2022 „Þá er verið að hugsa um mögulegt viðbragð í neyðarástandi“ Þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út vegna veikinda Sjá meira