Fáum stundum háðsglósur frá áhorfendum Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 16. júní 2009 07:00 Guðmundur Benediktsson, KR.
Það vakti óneitanlega athygli að íþróttafréttamennirnir Hjörtur Hjartarson og Guðmundur Benediktsson voru báðir á skotskónum með sínum liðum í Pepsi-deild karla á sunnudagskvöldið. Bæði mörkin þóttu einkar lagleg og segir Hjörtur að hann sé það gamall í hettunni að svona afgreiðsla á knettinum gerist sjálfkrafa. „En þetta er nú samt töluvert mál fyrir svona gamlan og þungan mann," sagði Hjörtur í léttum dúr. Guðmundur skoraði með skalla sem hann segir að hafi verið dýrmætt fyrir sig persónulega. „Það voru tveir menn búnir að veðja við mig að mér myndi ekki takast að skora með skalla í sumar. Ég ákvað því að henda mér niður í boltann og afgreiða þetta mál strax," sagði hann og hló. Báðir segjast þeir mæta skilningi hjá sínum yfirmönnum til þess að sinna fótboltanum en Hjörtur vinnur hjá RÚV og Guðmundur hjá Stöð 2 Sporti. „Þetta getur verið erfitt þar sem mesta vinnan er á kvöldin og þá helst á sama tíma og æfingar og leikir eru. Þá er einnig fótboltinn stærsta íþróttin á Íslandi og því erfitt fyrir mig að þurfa að sniðganga alveg íslenska fótboltann í vinnunni," sagði Hjörtur. Báðir játa þeir því að hafa fengið aðeins meiri athygli en aðrir knattspyrnumenn vegna starfa sinna. „Aðallega eru áhorfendur að spyrja mig hvort ég vilji ekki bara lýsa leiknum en ég hef nú yfirleitt gaman af því," sagði Guðmundur. Samskipti Hjartar og Ólafs Jóhannessonar landsliðsþjálfara hafa vakið athygli á blaðamannafundum KSÍ fyrir landsleiki. Ólafur hefur haft það á orði að Hjörtur eigi ekki lengur möguleika á landsliðssæti. Hjörtur svarar þó fyrir sig nú í gamansömum tóni. „Ég hélt nú að mín leið í landsliðið væri greið eftir að Óli tók við enda vorum við saman hjá Skallagrími á sínum tíma. En annað hefur komið á daginn. Svo þegar ég spyr hann hvort hann hafi verið duglegur að mæta á Þróttaraleiki segist hann ekki nenna því. Ég þurfi hins vegar bara að leggja inn á hann og þá kemst ég inn. Landsliðsdraumurinn minn er þó enn á lífi - ég þarf bara að vera duglegur að safna."
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Rekinn frá Stjörnunni Körfubolti Kvaddi Val og sló í gegn eftir fullyrðingar um lélegt hugarfar Íslenski boltinn Lætur Ingu Sæland heyra það: „Óboðlegt og frekar hrokafullt“ Sport „Eins og staðan er núna er Álftanes langt á undan okkur“ Körfubolti Arnar um agabrot landsliðsmanna: „Mikil vonbrigði fyrir mig persónulega“ Fótbolti „Munar alveg að þurfa ekki að spila 38 mínútur í leik“ Körfubolti „Þetta er alltaf eitthvað limbó“ Körfubolti „Við fórum að spila alvöru körfubolta“ Sport Slátrarinn baðst afsökunar en fær sekt Enski boltinn Infantino baðst afsökunar en neitaði að svara fjölmiðlum Fótbolti Fleiri fréttir Kvaddi Val og sló í gegn eftir fullyrðingar um lélegt hugarfar Tekur ekki við fyrr en eftir tímabilið Guðmundur greindist með hjartasjúkdóm Rúnar Páll tekur við Stjörnunni á nýjan leik Koma Eiðs vendipunktur: „Hafa ofurtrú á því sem hann kemur fram með“ Lögðu til átta milljóna króna stofnframlag Sjáðu mörkin úr Víkinni og Höskuld halda vel upp á stóran áfanga Ósáttur við framkomu stuðningsmanna meðan hann fékk aðhlynningu „Ég veit alveg hvað í mér býr og ætla að sýna það“ Uppgjörið: Breiðablik - Keflavík 3-1 | Breiðablik vann í nepjunni í Kópavoginum Uppgjörið: Víkingur-ÍA 2-2 | Skagamenn sóttu stig í Fossvoginn Sjáðu mörkin sem björguðu FH, felldu ÍBV og tryggðu KR tugi milljóna „Í fyrsta sinn sem við vinnum ósanngjarnt“ Uppgjörið: Fram - KR 1-2 | KR styrkti stöðu sína í öðru sæti „Við ætlum að vinna rest“ Linta eftir fallið: „Enginn bjóst við þessu“ ,,Menn þurfa að bera meiri virðingu fyrir Stjörnunni en þetta” „Orðið algjört vígi að koma hérna“ Uppgjörið: Þór - ÍBV 1-0 | Felldu Eyjamenn og halda í vonina Stjarnan - KA 0-3 | Halda sér ofan fallsvæðis Valur - FH 3-5 | Öruggir eftir skrautlegan sigur „Reynum að kveikja í hræðslu hjá þeim“ „Það er aldrei lognmolla í kringum Óskar“ Tumi Fannar mættur á Hlíðarenda Jóhann Berg leggur skóna á hilluna Tarik framlengir við Víking Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Stóri munurinn á feigum og ófeigum: „Hvað er planið?“ Sjá meira