Ekkert mál að bera brjóstin - myndir ellyarmanns skrifar 9. júní 2008 11:22 Vigdís Másdóttir, lengst til hægri, er leikkona á þriðja ári í Listaháskóla Íslands en hún var valin til að túlka á myndrænan hátt tilfinninguna sem fylgir ófrjósemi kvenna í ljósmyndasýningunni Egglost. „
Nekt fyrir mér er ekki mikið mál ef hún hefur tilgang," svarar Vigdís Másdóttir leiklistarnemi þegar Vísir spyr hana hvort það hafi verið mikið mál að bera brjóstin í þágu listarinnar en hún túlkar ófrjósemi kvenna á ljósmyndasýningunni Egglost sem var opnuð á veitingahúsinu B5 í Bankastræti í gær. „Í skólanum erum við hvött til að spyrja sífellt spurninga og nálgumst viðfangsefnin okkar með forvitni og hugrekki og þá er lykilspurningin af hverju. Í þessu tilfelli var hugmyndin mjög skýr svo að annað hefði verið skrítið," segir Vigdís. „Maður hittir alveg fólk sem hefur séð mann leika og gerir ekki greinarmun á mér og svo persónunni sem ég leik," segir Vigdís. „Þetta hefur mikið hjálpað mér í allri minni sköpun og kom sterkt inn í vinnuna með Lilju, Ingunni og Þórdísi." „Í mínu starfi klæðist ég yfirleitt búningum og það að vera nakin væri líka búningur. Það sem við leikararnir lærum er að þó svo að við séum það sem við gerum þá verðum við líka að læra að aðskilja prívatið frá faginu. Við erum alltaf að nota okkur sjálf svo að aðskilnaðurinn verður auðvitað aldrei fullkominn en við verðum að geta þetta upp að vissu marki." Vigdís Másdóttir túlkar hér ófrjósemi, á einni af ljósmyndum sýningarinnar, gefandi ýsu brjóst. MYND/Lilja. „Vinnan með stelpunum var fyrst og fremst skemmtileg. Nú hef ég starfað hin ýmsu störf í hinum ýmsu miðlum og ég hef aldrei verið á eins huggulega setti. Stelpurnar vinna mjög vel saman. Þær hafa allar mjög sterkar skoðanir og þær voru ekki alltaf þær sömu en það var allt rætt í mestu vinsemd því allar voru þær að vinna að sama markmiðinu." Hugmyndasmiðir sýningarinnar: Þórdís Þorleifsdóttir útlitshönnuður, Ingunn Jónsdóttir vöruhönnuður og Lilja Kristjánsdóttir ljósmyndanemi. „Þær voru með storyboard, sem er sagan teiknuð á blað, en þær voru alltaf tilbúnar í samtal ef myndin var ekki að virka. Eins skildu þær eftir smá rými fyrir mig til að finna leið til finna tilfinninguna." „Ég held að það skili sér á myndunum. Ég fékk að gera mitt og ég er mjög þakklát fyrir það. Þær treystu mér fyrir því og gáfu mér pláss til að vinna mína vinnu. Þær sköpuðu mjög afslappað andrúmsloft og voru mjög frjóar og þá getur ekki verið annað en yndislegt að vinna," segir Vigdís að lokum.
Mest lesið Klukkutíma bröns getur kostað marga daga í rúminu Lífið IceGuys boða sína síðustu tónleika: Sonur Arons Can gerði allt vitlaust Tónlist Krakkatía vikunnar: Hungurleikar, biskup og geirfuglinn Lífið „Við getum ekki kvartað undan veðrinu“ Lífið Innipúki er ekki það sama og fýlupúki Lífið Fréttatía vikunnar: Vasaþjófar, KFC og morðhótanir Lífið Big Pussy er látinn Lífið Úr verslunarrekstri á „fínni útgáfuna“ af ítalskri knæpu Lífið „Hélt ég myndi aldrei upplifa ást sem þessa“ Lífið Vodafone opnar háhraðaherbergi í Arena Leikjavísir Fleiri fréttir Innipúki er ekki það sama og fýlupúki „Við getum ekki kvartað undan veðrinu“ Klukkutíma bröns getur kostað marga daga í rúminu Krakkatía vikunnar: Hungurleikar, biskup og geirfuglinn Big Pussy er látinn Fréttatía vikunnar: Vasaþjófar, KFC og morðhótanir Fiðrildi og flugeldar í maganum í Herjólfsdal Selur aflátsbréf fyrir forsjálustu syndgara helgarinnar Loðinn laumufarþegi sníkti far frá Úlfarsfelli Þjóðhátíð sett í blíðviðri í Eyjum Hættur í Jesus Christ Superstar eftir útgáfu lags til stuðnings Ísrael Ískaldur töffari, skapstór snillingur og afkastamikill vinnuþjarkur Árið sem skytturnar fjórar kvöddu Sam Smith trúlofað Halla Hrund og uglurnar þrjár Útför Megasar Gerði sátt við aðstoðarkonuna sem sakaði hann um nauðgun „Þegar við sáum kastalann var ekki aftur snúið“ Gladiator kveikti neistann við brennuna og úr varð ódauðlegt þjóðhátíðarlag Kíkti í kaffi til kanslarans Hvað veistu um… skák? „Ég hef aldrei brotið kynferðislega á neinum á ævi minni“ Madison Beer trúlofast NFL-kappa Sonurinn fékk nafnið Isaiah Ellason Fox Glen Hansard látinn eftir mótorhjólaslys Kavinsky fannst látinn á heimili sínu Fjórar konur ásaka Leto um refsiverða háttsemi í nýrri heimildarmynd Vann með fimm poppstjörnum á einni viku Sjóðheitur Patrekur Jaime með stórstjörnuteiti Tilraunakennd tískusýning í bílakjallara Sjá meira