Angelina blæs lífi í tvíburaorðróm 28. janúar 2008 12:23 Jolie felur Löru Croft vöxtinn undir sérhönnuðu tjaldi.
Angelina Jolie gerði ekkert til að draga úr vangaveltum um að hún gangi með tvíbura þegar hún mætti á SAG verðlaunahátíðina um helgina. Stjarnan grannvaxna mætti í einhverju sem verður best líst sem tjaldi, og skálaði í vatni yfir kvöldmatnum. Þóttust reyndir menn jafnvel sjá kúlu undir herlegheitunum. Talsmenn parsins hafa ekki viljað staðfesta orðróminn, en hafa ekki neitað honum heldur. Skötuhjúin hafa aldrei farið í grafgötur með það að þau vilji eignast fleiri börn, en þau eiga fjögur nú þegar. „Við erum að safna í fótboltalið" sagði Brad Pitt í viðtali á dögunum. Angelina hefur einnig lýst því yfir að hún vilji jafnvægi á milli kynþátta á heimilinu. Þau eiga fyrir tvo drengi, Maddox og Pax, ættleidda frá Asíu, dótturina Zahöru sem þau ættleiddu frá Eþíópíu, og svo líffræðilegu dótturina Shiloh. Þau eru sögð ætla að eyða páskunum í að skoða munaðarleysingjahæli víðsvegar um Afríku með það fyrir augum að ættleiða annað barn þaðan. Gangi Angelina með tvíbura eins og sagt er væru þau því einmitt búin að finna hið gullna jafnvægi, en þá ættu þau þrjú af hvoru.
Mest lesið 50+: Fólk upplifir sig yngra en áður – og þróunin heldur áfram Áskorun Margaret Kerry er látin Bíó og sjónvarp Vildi hjálpa öðrum þótt hún vissi að tíminn væri naumur Lífið Gefa yfir 50 vinninga í beinni útsendingu Lífið Óboðni sturtugesturinn sextán sentímetra kónguló Lífið Krakkatía vikunnar: HM, risaeðlur og naglaklippur Lífið Ekkert líf að verða hrædd á hverju vori Lífið Ósk um öfgafulla ást og bæling í bakherbergjunum Gagnrýni Fréttatía vikunnar: NASA, Messi og Mette-Marit Lífið „Það er ástæða fyrir bólgunni“ Lífið Fleiri fréttir Gefa yfir 50 vinninga í beinni útsendingu Krakkatía vikunnar: HM, risaeðlur og naglaklippur Vildi hjálpa öðrum þótt hún vissi að tíminn væri naumur „Það er ástæða fyrir bólgunni“ Óboðni sturtugesturinn sextán sentímetra kónguló Ekkert líf að verða hrædd á hverju vori Fréttatía vikunnar: NASA, Messi og Mette-Marit Stórslasaðist átján ára eftir ölvaðan ökumann: „Braut öll bein á vinstri hliðinni minni“ Myndaveisla: Veðrið leikur við íbúa höfuðborgarsvæðisins Stærstu rauðu flöggin á stefnumótaforritum Gestir geti fengið innsýn í skapandi samfélag Hafnar.hauss Backstreet Boys frumsýna lag nýrrar Hvolpasveitarmyndar Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Hefur þegar fengið starfstilboð Hvað veistu um… árið 2010? Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Sjá meira