Enski boltinn

Crouch færist nær Portsmouth

Elvar Geir Magnússon skrifar
Crouch í leik gegn Chelsea.
Crouch í leik gegn Chelsea.

Portsmouth vill fá Peter Crouch, sóknarmann Liverpool, í sínar raðir. Viðræður milli þessara félaga fóru fram um helgina og þokast þær í rétta átt.

Samkvæmt heimildum BBC gæti kaupverðið á þessum 27 ára leikmanni farið upp í 11 milljónir punda.

Crouch var aðeins níu sinnum í byrjunarliði Liverpool í ensku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili og Rafael Benítez hefur sagt að hann sé opinn fyrir tilboðum í leikmanninn.

Crouch byrjaði sinn feril í unglinga-akademíu Tottenham áður en hann fór til Portsmouth, Aston Villa, Norwich, Southampton og loks Liverpool.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×