Aukinn launakostnaður þungur baggi á West Ham Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 20. júní 2008 09:00 Eggert Magnússon, fyrrum stjórnarformaður West Ham, ásamt Björgólfi Guðmundssyni eiganda félagsins og núverandi stjórnarformanni. Nordic Photos / Getty Images
Þó svo að tekjur West Ham hafi minnkað um nærri tvær milljónir punda á milli ára jókst launakostnaður félagsins um tæpar þrettán milljónir. West Ham kom verst út úr þessum samanburði af öllum félögunum sem léku í ensku úrvalsdeildinni árin 2006-7, að því sem kemur fram í árskýrslu Deloitte um fjármál knattspyrnuheimsins. WH Holding keypti félagið þá um haustið en aðaleigandi félagsins var Björgólfur Guðmundsson. Eggert Magnússon tók þá við stjórnarformennsku í félaginu en lét af því starfi í desember síðastliðinn. Þá seldi hann einnig Björgólfi sinn hlut í félaginu. Launakostnaður West Ham jókst um 41 prósent eftir að Íslendingarnir keyptu félagið. Aðeins hjá Portsmouth (49%), Sheffield United (48%), Watford (76%) og Reading (109%) var um hærri hlutfallsaukningu að ræða. Þrjú síðastnefndu liðin voru nýliðar í deildinni það tímabilið og Portsmouth skipti um eigendur á viðkomandi tímabili, rétt eins og West Ham. Nýliðarnir þrír áttu þó allir fyrir auknum launakostnaði þar sem tekjuaukning félaganna var mun meiri en aukinn launakostnaður. Portsmouth og West Ham juku bæði launakostnað um 12-13 milljónir punda. Munurinn á félögunum er hins vegar sá að tekjur Portsmouth þetta tímabilið jukust um tæpar fjórar milljónir punda á meðan að tekjur West Ham minnkuðu um tæpar tvær milljónir punda. Heildarlaunakostnaður West Ham fyrir áðurnefnt keppnistímabil voru rúmir 44 milljónir punda sem er rétt undir meðaltali deildarinnar. Aðeins fimm félög eru með hærri launakostnað en það eru Chelsea (132 milljónir punda), Manchester United (92), Arsenal (89), Liverpool (77) og Newcastle (62). WH Holding keypti West Ham United fyrir 108 milljónir punda í nóvember árið 2006.
Mest lesið Reyndi að nappa treyju Isaks af börnum Enski boltinn Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Enski boltinn Hrækti á vítapunktinn og víti ÍBV fór forgörðum Íslenski boltinn Vann í Viltu vinna milljón og fær nú að mæta Man. Utd Fótbolti „Ætla að taka frí langt fram á vetur“ Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Man. Utd og lærisveinar Eiðs þurfa að svara fyrir sig Sport Emin sigraði með rothöggi og er enn taplaus Sport Gaf Arsenal afsvar en var hvergi sjáanlegur í sigri Fótbolti Gakpo valdi City og viðræður í fullum gangi Enski boltinn Orri hetjan í fyrsta sigrinum Fótbolti Fleiri fréttir Reyndi að nappa treyju Isaks af börnum Gakpo valdi City og viðræður í fullum gangi Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Elanga byrjar frábærlega en Tottenham ömurlega Íslendingar spiluðu stór hlutverk í leikjum dagsins á Bretlandseyjum Bournemouth - Everton 1-1| Everton bjargar jafntefli Sjáðu Haaland skora með sínu nýja hári Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield PSG samþykkir tilboð Liverpool í Barcola Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Goretzka mættur til Villa Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Dagný orðin sendiherra West Ham Raheem Sterling ákærður Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Sjá meira