Lúxusíbúðir seljast þrátt fyrir samdrátt Andri Ólafsson skrifar 10. mars 2008 11:50 Fjölbýlishúsin sem Skuggi 101 er með í byggingu. Mynd: 101skuggi.is
Að sögn Hörpu Þorláksdóttur, markaðsstjóra 101 Skugga, eru 15 lúxusíbúðir af þeim 97 sem félagið byggir nú á Vatnsstíg og Lindargötu þegar seldar. Harpa segir þetta vera í takt við áætlanir en 101 Skuggi hafi fyrirséð tregðu á fasteignamarkaði í byrjun þessa árs. Húsin sem 101 Skuggi er með í byggingu eru fjögur talsins og var nýlega byrjað að selja íbúðirnar í þeim. Þótt töluverð lægð sé á markaðnum nú, veltan fyrstu vikuna í febrúar var 3301 milljón til móts við 5086 milljónir á sama tíma í fyrra, eru fasteignasalar sammála um að enn sé nokkur eftirspurn í fasteignir í efsta verðflokki. Þeir benda á að sá samdráttur sem nú ríkir á fasteignamarkaði hafi ekki endilega áhrif á sölu lúxusíbúða þar sem kaupendur slíkra íbúða séu venjulega ekki hinn íslenski meðaljón. Til marks um það er ein ef þeim íbúðum sem 101 Skuggi hefur þegar selt, penthouse-íbúð við Vatnsstíg 16-18. Sú íbúð var af mörgum talinn feitasti bitinn sem 101 Skuggi hafði upp á að bjóða en íbúðin er 312 fermetrar á 18. og 19. hæð, í um 65 metra hæð. Í henni má til dæmis finna 46 fermetra bókastofu, 40 fermetra þakgarð og gufubað. Sú íbúið var seld á litlar 230 milljónir og voru það Jón Ásgeir Jóhannesson og eiginkona hans, Ingibjörg Pálmadóttir, sem festu kaup á íbúðinni. Þau eiga jafnframt 294 fermetra þakíbúð á Vatnsstíg 21. Af öðrum sem fest hafa kaup á lúxusíbúðum 101 Skugga má nefna eignarhaldsfélag í eigu Kristins Björnssonar, fyrrverandi forstjóra Skeljungs, og Karólínu Lárusdóttur myndlistakonu.
Mest lesið „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið Innlent Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Innlent Ósáttur við skilyrðin Erlent „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Innlent Konan komin í leitirnar Innlent „Þetta vita Einar og Björg“ Innlent Fleiri fréttir „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Býr sig undir það versta en vonar það besta Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Bókstafir verði að tölustöfum Draugagangur, búrtíkur og öngull í rassi „Þetta vita Einar og Björg“ Skotið fór í gegnum handlegg og endaði í öxl Hafa þegar rætt við Daða Má um samgöngusáttmálann Taka ásýnd Varmár alvarlega og stöðva borframkvæmdir Mun dæma meirihlutann af verkunum Sjálfstæðismenn og Framsókn í eina sæng í Múlaþingi „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Kolbeinn tekur við af Bryndísi sem ráðuneytisstjóri Sjá meira