Clinton lánaði eigin kosningasjóð 330 milljónir Sigríður Guðlaugsdóttir skrifar 7. febrúar 2008 09:27 Fjárhagsstaða kosningasjóðs Obama er mun betri en hjá Clinton.
Hillary Clinton lagði til fimm milljónir bandaríkjadala, rúmlega 330 milljónir íslenskra króna, í kosningasjóð sinn úr eigin vasa fyrir forkosningarnar á þriðjudag. Þá munu sumir lykilstarfsmenn kosningaframboðs hennar einnig hafa samþykkt að vinna launalaust í einn mánuð samkvæmt heimildum CNN sjónvarpsstöðvarinnar. „Okkur gekk mjög vel að afla fjár í janúar, settum meira að segja met," sagði Clinton við fréttamenn; „En keppinaut mínum tókst að afla meira fjár og við ætlum að vera samkeppnishæf, og við erum það, ég held að úrslit þriðjudagsins sýni réttmæti fjárfestingarinnar." Gloria Borger helsti stjórnmálaskýrandi CNN segir að nú vilji Clinton eiga kappræður við Obama í hverri viku. Kosningasjóður hennar hafi ekki efni á fjáraustri í auglýsingar. Barack Obama og Hillary Clinton berjast fyrir tilnefningu Demókrataflokksins eftir afar jöfn úrslit forkosninga á þriðjudag. Clinton sagði að barátta hennar væri í fullum gangi eftir að hún fór með sigur í nokkrum stórum fylkjum á þriðjudag. Obama sagði að fjöldi forkosninga væri eftir þar sem berjast þyrfti fyrir atkvæðum og staða hans væri sterkari en fyrir tveimur vikum. John McCain er með töluvert forskot úr röðum frambjóðenda Repúblíkana. Fréttaskýrendur segja sigur hans næstum vissan, en barátta Demókrata gæti haldið áfram að flokksþingi í ágúst þegar tilnefningin verður innsigluð. Kosið verður í sex ríkjum á næstu fjórum dögum. Fyrst í Louisiana, þá Nebraska og Washingtonríki á laugardag og svo Maryland, Virginíu og Washington DC. Hillary hefur nú hlotið 782 kjörmenn en Obama 757. Til að tryggja sér sigur þarf annað hvort þeirra að ná 2.025 kjörmönnum. Clinton segist hafa unnið flest atkvæði og flesta kjörmenn á meðan Obama segist hafa unnið flest ríki og flesta kjörmenn.
Mest lesið Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent Fékk ekki að borða nema hún stundaði kynlíf Innlent Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Erlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Innlent Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Innlent Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Erlent Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Erlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent Stofnar „Ofurgreindarstjórnina“ þrátt fyrir ákall um hægari þróun Erlent Fleiri fréttir Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Boðaði óvænt þingkosningar á Spáni Stofnar „Ofurgreindarstjórnina“ þrátt fyrir ákall um hægari þróun Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Sjá meira