Enski boltinn

Roberts framlengir við Blackburn

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Jason Roberts fagnar hér marki með Blackburn.
Jason Roberts fagnar hér marki með Blackburn. Nordic Photos / Getty Images

Jason Roberts hefur framlengt samning sinn við enska úrvalsdeildarfélagið Blackburn til ársins 2011 með þeim möguleika að framlengja honum aftur um eitt ár.

Roberts kom frá Wigan árið 2006 og hefur skorað alls níu mörk í 53 deildarleikjum með Blackburn. Þar af tvö mörk í níu leikjum á þessu tímabili.

„Ég hef verið mjög ánægður með veru mína lengst af hjá Blackburn og er ánægður með að þetta skuli vera klappað og klárt," sagði Roberts. „Ég vonast til að geta sýnt mitt besta á vellinum."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×