Neðanjarðarlest gæti kostað rúma 50 milljarða 14. mars 2008 19:30
Neðanjarðarlestarkerfi í Reykjavík myndi kosta um það bil tvöfalt meira en fyrirhuguð Sundagöng eða rúma 50 milljarða króna. Björn Kristinsson verkfræðingur sagði í fréttum stöðvar 2 í gærkvöldi að neðanjarðarlestarkerfi væri eina lausnin á vanda almennings-samgangna á höfuðborgarsvæðinu sem vit væri í. Hann sagði slíka framkvæmd dýra en það væri einnig að grafa sundur götur eða gera mislæg gatnamót. Björn hefur reiknað út að mislæg gatnamót, Sundabraut og niðurgröftur gatna kosti nálægt 40 milljörðum. Til samanburðar kostar hver kílómetri af neðanjarðarlestarkerfi um 3 milljarða og hver lestarstöð um einn milljarð. Skoðum hvernig slíkt kerfi gæti litið út í Reykjavík Hægt væri að leggja eina braut frá Háskólasvæðinu upp í Grafarholt og aðra frá Laugarás til Fellahverfis. Krossgötur brautanna gætu verið í Skeifunni og samtals yrðu biðstöðvarnar 10. Brautin frá Háskólanum upp í Grafarholt væri þá 8 kílómetra löng og brautin frá Laugarásnum að Fellum um 5,5 kílómetrar. Samtals tæpir 14 kílómetrar. Slíkt kerfi myndi þá kosta 52 milljarða króna. Til samanburðar má nefna að gert er ráð fyrir að Héðinsfjarðargöng kosti um 9 milljarða og Sundagöng um 23 milljarða króna. Ef hin sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu væru reiðubúin til að taka þátt í verkefninu þá væri möguleiki á að leggja eina braut úr skeifunni að Smáralind og þaðan undir Garðabæ og til Hafnarfjarðar en hún ein og sér myndi þá kosta um 8 milljarða og milljarð til viðbótar fyrir hverja biðstöð. Það verður líklega ekki hægt að stíga út úr svona lest á Íslandi á næstu árum enda tekur um 10 til 20 ár að hanna og búa til svona kerfi. Hugmyndin snýst jú um að hanna kerfi sem hentar til framtíðar og það á við um neðanjarðarlestakerfi sem endist jafnvel í meira en 100 ár
Mest lesið Afsalar sér verðlaunum fyrir Sykurbað Innlent Ráðherrabrölt Flokks fólksins kostað 18 milljónir Innlent Hafi þegið pening fyrir að giftast kærustu Quang Le Innlent Þingheimur hló að þýðingu Daða Más Innlent Gríðarstór vatnselgur undir Breiðholtsbrú Innlent Mannréttindadómstóllinn vísar máli Nöru frá Innlent Vilja 25 billjónir: „Það þarf peninga til að drepa vonda kalla“ Erlent Dælan anni ekki vatnsmagni Innlent Skráði bóluefni sem dánarorsök án sannana Innlent Hart sótt að fjármálaráðherra Innlent Fleiri fréttir Aflýsa tólf flugferðum frá Ameríku Snjóflóðahætta og öfgakarlmennska áhrifavalda Dómur staðfestur yfir árásarmanni Tinnu Milljarður í holufyllingar og Einar minnti á heilahristing Patta Lagt til að bílastæðum fjölgi við nýbyggingar Skráði bóluefni sem dánarorsök án sannana Grunsamlegir póstar í umferð: „Tafarlaus aðgerð nauðsynleg“ Dælan anni ekki vatnsmagni Hörð gagnrýni þegar tenging bóta við launavísitölu var samþykkt Mannréttindadómstóllinn vísar máli Nöru frá Minnisvarði um rauðsokkur rís í sumar Lögreglustöðinni verði lokað verði húsnæðið ekki lagað Gríðarstór vatnselgur undir Breiðholtsbrú Hart sótt að fjármálaráðherra „Mjög vont veður sem mun eflaust skapa vandamál“ Mikilvægast með jarðgöngum að losna við hættulegustu vegi Hugsi yfir fréttum af brunavörnum á Stuðlum Þingheimur hló að þýðingu Daða Más Ráðherrabrölt Flokks fólksins kostað 18 milljónir Vonskuveður víðast hvar og Eyjólfur varði Fljótagöng Eldur kviknaði í bíl Ísland í öðru sæti yfir hamingjusömustu þjóðir heims Hefja rannsóknarboranir fyrir jarðgöng til Eyja Hvöss suðvestanátt og él fram á laugardagsmorgun „Ég sit ekki hér og hóta því að við séum á leiðinni í verkfall“ Afsalar sér verðlaunum fyrir Sykurbað Bein útsending: Opinn fundur um samgönguáætlun „Við aflífun upplifa þessi dýr dauðastríð sem er andstætt lögum“ Flugið er líflína milli byggða Grænlands Intuens höfðar mál á hendur landlæknisembættinu Sjá meira