Segir Baugsmál hafa molnað í höndum skattayfirvalda Breki Logason skrifar 14. mars 2008 13:34 Hreinn Loftsson stjórnarmaður í Baugi og lögmaður félagsins „
Þetta mál hefur molnað niður í höndum skattyfirvalda og núna þarf að endurgreiða okkur rúmlega 75 milljónir af þeim 142 sem okkur var gert að greiða. Þá spyr maður sig hvort ekki hafi verið full hátt reitt til höggs af þeirra hálfu?," segir Hreinn Loftsson stjórnarmaður í Baugi og lögmaður félagsins. Ríkisskattstjóra hefur verið gert að endurgreiða Baugi Group rúmlega 75 milljónir króna vegna oftekinna opinberra gjalda samkvæmt ákvörðun yfirskattanefndar. Hreinn segir að af þeim átta atriðum sem stóðu eftir standi nú einungis þrjú atriði eftir. „Tvö af þeim eru minniháttar og eitt atriðið snýr að tæknilegri útfærslu á sameiningu félaga árið 1998 sem urðu að Baugi. Það er alltaf erfitt að meta óskráð fyrirtæki og þetta atriði er til skoðunar og fer jafnvel fyrir dómstóla." Hreinn segir að ekki síst sé athyglisvert að málið hafi verið blásið mikið upp í fjölmiðlum og meðal annars hafi valdamiklir stjórnmálamenn talað um að þarna væri stærsta skattsvikamál sögunnar í uppsiglingu. „Þetta er síðan niðurstaðan.“ Hann bendir á að rannsóknin hafi kostað gríðarlega fjármuni en það sem eftir standi séu atriði sem lúti að starfstengdum greiðslum nokkurra yfirmanna félagsins á árunum 1998-2002. „Yfirskattanefnd hefur hinsvegar komist að þeirri niðurstöðu að þessar greiðslur voru hlunnindi en ekki staðgreiðsluskyldar á þessum tíma," segir Hreinn. Aðspurður um hvaða áhrif þessi staða hafi á hugsanlegt framhald málsins gagnvart þeim einstaklingum sem í hlut eiga segir Hreinn: „Það veikir mjög stöðu yfirvalda að ætla að koma með einhverja ákærur á hendur þessum einstaklingum þar sem umræddar greiðslur voru ekki staðgreiðsluskyldar þegar þeir fengu þær. Hugsanlegur refsigrundvöllur er því mjög óljós."
Mest lesið Sérveitin kölluð út að vopnaðri líkamsárás á Selfossi Innlent Fyrrverandi eiginmaður Bidens ákærður fyrir morð Erlent Fjölskyldu konunnar grunaði ekkert Innlent Kröfunni hafnað og starfsmönnunum sleppt Innlent Rannsókn hófst eftir tilkynningu starfsmanns Innlent Sláandi niðurstöður um afstöðu Dana til sambandsins við Bandaríkin Erlent Rétt var að svipta Guðmund Karl lækningaleyfinu Innlent Öðru embætti falið að rannsaka andlátið Innlent Myndi kosta sveitarfélögin 300 milljónir á ári Innlent „Hvenær í ósköpunum er botninum náð á þessum vinnustað?“ Innlent Fleiri fréttir Eldri þjóð þýðir öðruvísi húsnæði Tveggja turna tal í Reykjavík Tillaga um „hlaðborð lausna“ felld Krúnan sjálf gæti verið í hættu vegna hneykslismála Myndi kosta sveitarfélögin 300 milljónir á ári „Hvenær í ósköpunum er botninum náð á þessum vinnustað?“ Sérsveitin brást við slagsmálum á Selfossi: „Í það minnsta kylfa notuð“ Telja eðlilegt að gusurnar greiði gjald Rannsókn hófst eftir tilkynningu starfsmanns Rannsókn á andlátinu hófst eftir tilkynningu starfsmanns „Af öllum vondu málum ríkisstjórnarinnar finnst mér þetta það versta“ Starfsmenn á bráðamóttöku með berkla en ekki taldir smitandi Snjóleysi í Reykjavík í janúar ekki einsdæmi en afar fátítt Kröfunni hafnað og starfsmönnunum sleppt Fjölskyldu konunnar grunaði ekkert Sérveitin kölluð út að vopnaðri líkamsárás á Selfossi Borgarstjórn vill að börn fái frítt í Strætó Unglingaofbeldi eykst: „Slagsmál geta hreinlega endað með manndrápi“ Grafið í háspennustreng í Urriðaholti Skæð fuglaflensa í villtum fuglum á höfuðborgarsvæðinu Fara fram á gæsluvarðhald yfir starfsmönnum Hraunbúða Andlát í Eyjum til rannsóknar og listería á Vitatorgi Ekki staðfest að veikindi fimm tengist listeríu í salati Árekstur í Urriðaholti Miðflokkurinn býður fram í Vestmannaeyjum Kona kastaði flösku í höfuð manns Öðru embætti falið að rannsaka andlátið Rétt var að svipta Guðmund Karl lækningaleyfinu Átta frambjóðendur VG berjast um þrjú sæti á lista í Reykjavík Litlar breytingar á fylgi flokkanna Sjá meira