Búið að gera við um helming Nissan Navara bíla 14. mars 2008 13:12
Öryggisbúnaður í rúmlega tvö hundruð Nissan Navara pallbílum hér á landi hefur verið endurbættur eftir að bíllinn fékk falleinkunn í árekstraprófun. Í endurteknum prófunum eftir breytingar fær bíllinn hins vegar mun betri einkunn. Í árekstraprófun evrópska bifreiðaeftirlitsins Euro NCAP sem fram fór í síðasta mánuði fékk Nissan Navara svo slæma útkomu að bíllinn var beinlínis talinn lífshættulegur. Við árekstur á rúmlega 60 kílómetra hraða brotnaði burðargrind í bílnum og brot úr henni gekk inn í fótrými ökumanns. Þá brugðust loftpúðar og beltastrekkjar of seint við með þeim afleiðingum að skynjarar í höfði ökumannsbrúðurnnar bentu til lífshættulegra áverka. Hlaut bíllinn einungis eina gegnumstrikaða stjörnu af fimm í prófinu. Á heimasíðu Félags íslenskra bifreiðaeigenda kemur fram að framleiðendur bílsins hafi brugðist skjótt við og breytt öryggishugbúnaði bílsins. Í kjölfarið endurtók Euro NCAP árekstrarprófið og fékk bíllinn þá þrjár stjörnur af fimm. Umboðsaðili Nissan Navarra hér á landi, Ingvar Helgason hf., innkallaði um 420 Nissan Navara bifreiðar til hægt væri að endurstilla öryggishugbúnað. Loftur Ágústsson, markaðsstjóri hjá Ingvari Helgasyni, sagði í samtali við fréttastofu að nú þegar væru búið að endurbæta um 200 bifreiðar. Tveir þjónustubílar á vegum umboðsins væru nú að keyra hringinn í kringum landið til að aðstoða viðskiptavini á landsbyggðinni. Vonast hann til þess að búið verði að endurbæta alla bíla eftir tvær til þrjár vikur.
Mest lesið Sérveitin kölluð út að vopnaðri líkamsárás á Selfossi Innlent Fjölskyldu konunnar grunaði ekkert Innlent Sláandi niðurstöður um afstöðu Dana til sambandsins við Bandaríkin Erlent Öðru embætti falið að rannsaka andlátið Innlent Rétt var að svipta Guðmund Karl lækningaleyfinu Innlent „Svona rosaleg vanlíðan getur ekki staðið endalaust“ Innlent Fara fram á gæsluvarðhald yfir starfsmönnum Hraunbúða Innlent Fórnarlömb vilja láta loka á Epstein-skjölin Erlent Segir vonbrigðin með prinsessuna rista djúpt Erlent Kröfunni hafnað og starfsmönnunum sleppt Innlent Fleiri fréttir „Af öllum vondu málum ríkisstjórnarinnar finnst mér þetta það versta“ Starfsmenn á bráðamóttöku með berkla en ekki taldir smitandi Snjóleysi í Reykjavík í janúar ekki einsdæmi en afar fátítt Kröfunni hafnað og starfsmönnunum sleppt Fjölskyldu konunnar grunaði ekkert Sérveitin kölluð út að vopnaðri líkamsárás á Selfossi Borgarstjórn vill að börn fái frítt í Strætó Unglingaofbeldi eykst: „Slagsmál geta hreinlega endað með manndrápi“ Grafið í háspennustreng í Urriðaholti Skæð fuglaflensa í villtum fuglum á höfuðborgarsvæðinu Fara fram á gæsluvarðhald yfir starfsmönnum Hraunbúða Andlát í Eyjum til rannsóknar og listería á Vitatorgi Ekki staðfest að veikindi fimm tengist listeríu í salati Árekstur í Urriðaholti Miðflokkurinn býður fram í Vestmannaeyjum Kona kastaði flösku í höfuð manns Öðru embætti falið að rannsaka andlátið Rétt var að svipta Guðmund Karl lækningaleyfinu Átta frambjóðendur VG berjast um þrjú sæti á lista í Reykjavík Litlar breytingar á fylgi flokkanna Nakinn á rölti og hrækt í hár ökumanns „Svona rosaleg vanlíðan getur ekki staðið endalaust“ Þriðjungi finnst erfitt að fylgjast með fréttum Segir loðnuna allsstaðar kveikja vertíðarstemningu „Þá kemur bara allt í einu högg“ Tveir handteknir í tengslum við andlát í Vestmannaeyjum Gagnrýnir stjórnvöld um sinnuleysi vegna fæðuöryggis þjóðarinnar Brottvísanir verði beittasta vopnið Fjölskyldunni vísað til Rússlands en örlög föðurins óljós Fækka sýslumönnum í einn Sjá meira