Innlent

Bjarni ósáttur við leka í röðum framsóknarmanna

Andri Ólafsson skrifar
Bjarni Harðarson þingmaður.
Bjarni Harðarson þingmaður.

Valgerður Sverrisdóttir vill ekki tjá sig um gagnrýni Bjarna Harðarsonar sem birtist í bréfi sem hann ritaði nokkrum samflokksmönnum sínum á dögunum. DV birtir nokkra kafla úr bréfinu í dag en í því kemur fram gagnrýni á ræðu sem Valgerður flutti um Evrópumál á Iðnþingi.

Bréfið var ritað í trúnaði og er Bjarni ósáttur við að því hafi verið lekið í fjölmiðla. „Það er greinilega kappsmál einhvers í okkar röðum að þessi umræða sé tekin á opinberum vettvangi," segir hann.

Bjarni bætir því við að tilgangur bréfsins hafi einmitt verið að árétta þá skoðun sína að halda eigi umræðum um ágreingsmál innan raða flokksmanna.

„Með þessu bréfi vildi ég vekja athygli samflokksmanna minna á því hversu óheppilegt það sé að bera ágreining framsóknarmanna í ákveðnum málum á torg," segir Bjarni.

Hann tekur það fram að hann og Valgerður séu sem einn maður í mörgum málaflokkum og að þau hafi alltaf getað talað saman um það sem þau séu ósammála um, til að mynda í Evrópumálunum.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×