Innlent

Andmæla hugmyndum um einkavæðingu Hólaskóla

MYND/Ingólfur

Vinstri - græn í Skagafirði skora á stjórnvöld að standa vörð um Hólaskóla, Háskólann á Hólum, sem sjálfstætt menntasetur í þjóðareigu eins og hann hafi verið um aldir og andmæla harðlega hugmyndum um einkavæðingu.

Bent er á í tilkynningu frá Vinstri - grænum að skólinn hafi lengi gengt þýðingarmiklu hlutverki og verið stöðugur uppgangur í starfi hans í hartnær þrjá áratugi. Því sé harðlega mótmælt að skólinn verði látinn í hendur einstakra fyrirtækja eins og stjórnendur fyrirtækjasamsteypu Kaupfélags Skagfirðinga sæki á um.

Með slíku væri vegið að framtíð Hólaskóla og Hólastaðar. „Mikilvægt er að óvissu um rekstur skólans verði eytt hið fyrsta og stjórnvöld einhendi sér í að standa með myndarlegum hætti að áframhaldandi uppbyggingu Hólaskóla, Háskólans á Hólum," segir í tilkynningu Vinstri - grænna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×