Ultra Mega Technobandið Stefán á forsíðu Myspace Breki Logason skrifar 6. júní 2008 20:33 Sigurður í góðum gír með Ultra Mega technobandinu Stefán.
Sigurður Ásgeir Árnason söngvari í Ultra Mega Technobandinu Stefán segist hafa vaknað upp einn daginn með mörg þúsund heimsóknir á Myspace síðu hljómsveitarinnar. Ástæðan er sú að sveitin var á forsíðu Myspace samfélagsins. Hann boðar nýjar stefnur hjá hljómsveitinni. „Við vorum í sambandi við sænskan náunga sem heitir Andreas og sér um markaðsmálin fyrir Myspace í Svíþjóð. Hann var að vinna aðeins með Sigur Rós og vantaði eitthvað til þess að setja á forsíðuna. Þeir bentu víst eitthvað sérstaklega á okkur," segir Sigurður en á forsíðu Myspace þar sem allir fara sem ætla að skrá sig inn er að sjá auglýsingu um nýju plötu bandsins. „Þetta var fyrir um fjórum mánuðum og við lofuðum honum að platan yrði tilbúin en henni seinkaði aðeins. Við spiluðum samt bara með og settum ómasteraða plötu inn," segir Sigurður en þetta er hluti af markaðsherferð sem strákarnir eru að fara í. Hann segir hljómsveitina vilja halda erlendum "kontöktum" frá fjölmiðlum því hljómsveitin var gagnrýnd á dögunum fyrir að hafna tilboðum frá Universal í Þýskalandi. „Þeir ætluðu að búa til einhverja þýska súpergrúbbu úr okkur. Voru með hugmyndir um að gera teknó útgáfuna af Linkin park sem okkur leist ekkert á. Við sögðum því bara nei en þá urðu allir brjálaðir hérna heima á Íslandi," segir Sigurður og tekur fram að strákarnir í bandinu séu mjög stóískir og lítið að stressa sig á hlutunum. „Við erum nú samt búnir að komast ótrúlega langt á mjög skömmum tíma og miðað við aldur. Erum búnir að gefa út plötu og vera í fjölmiðlum bæði úti og hérna heima."„Kannski komum við bara fljúgandi í loftbelg"Hér má sjá auglýsinguna á Myspace.Sigurður segir að bandið muni þó koma fólki á óvart í sumar. „Við höfum verið svona partý technoband en ætlum að breyta aðeins núna. Okkur hlakkar mikið til þess að heyra í gagnrýnendum sem munu örugglega brjálast yfir þessari pötu. Við hinsvegar lofum einu heilsteyptasta verki sem hefur komið fram hér á landi. Við erum að vinna þetta svolítið svona í hugmyndafræðilegu samhengi. Hérna heima er þetta bara alltaf sama formúlan sem við könnumst ekkert við."En mega íslenskir aðdáendur ekki eiga von á að heyra í Ultra Mega Technobandinu Stefán í sumar?„Jú, jú, við getum sagt að við verðum í sviðsljósinu. En hvernig það verður kemur bara í ljós. Kannski komum við bara fljúgandi í loftbelg."Hægt er að skoða Myspacesíðu hljómsveitarinnar hér.
Mest lesið Ein heitasta leikkona landsins á lausu Lífið Stjörnulífið: „Fer þér ekki vel, þessi drjóli“ Lífið Sonur Cindy Crawford er látinn Lífið Sjóðurinn tómur Lífið Heyrir aftur hljóð sem höfðu verið horfin í mörg ár Lífið Var send í megrunarbúðir 11 ára gömul Lífið 50+: Ósjálfráða vinahreinsunin eftir fimmtugt Áskorun Einstakt einbýli Sigurðar og Láru Lífið Stjörnum prýdd fyrsta frumsýning vetrarins Lífið Fjögurra ára fyrirsætusonur stal senunni Tíska og hönnun Fleiri fréttir Ein heitasta leikkona landsins á lausu Einstakt einbýli Sigurðar og Láru Stjörnum prýdd fyrsta frumsýning vetrarins Heyrir aftur hljóð sem höfðu verið horfin í mörg ár Sonur Cindy Crawford er látinn Stjörnulífið: „Fer þér ekki vel, þessi drjóli“ Sjóðurinn tómur Var send í megrunarbúðir 11 ára gömul Krakkatía vikunnar: Nýjasti kisinn, rjúpa og vopn „Okkur langar bara til þess að gera þetta allt saman aftur“ Hætta að prenta Walliams eftir ásakanir um kynferðislegt áreiti Örvar og María Elísabet nýtt listapar Segir af sér eftir að hafa beitt mótmælendur ofbeldi „Maður getur varla beðið um meira“ Bakaríið í beinni útsendingu „Fóturinn á mér er ekki bólginn af því að ég missti barnið mitt“ Fréttatía vikunnar: Danir, pósthólf og Louis Vuitton Macklemore svarað Staðgöngumóðir var það Yfir sjöhundruð manns keypt af Guðna í forsölu Lilja í Cosmo selur aðra perlu Kjartans Korter í fæðingarþunglyndi en fór út að hlaupa viku eftir fæðingu Spurt var um dýr með það harðan skjöld að byssukúlurnar fljúga af þeim Ekkert náð að æfa sig en ætlar að kýla á Bakgarðshlaupið Barnastjarnan orðin tveggja barna móðir Hvað veistu um... fræga menn sem heita Robert? Ísak Bergmann og Agnes Perla eiga von á barni „Bakkus nær ekki þeim verstu af okkur, virðist helst velja þá bestu“ Skorar á Kraft að jafna framlag sitt til neyðaraðstoðar á Gasa Ef þú ert í þessum hópi ættir þú ekki að taka lýsi Sjá meira