Rolls Royce sportbíll rokselst 28. mars 2008 17:46
Kaupendur lúxusvara hlusta svitna greinilega ekki yfir nær lóðréttu sigi hlutabréfamarkaða undanfarið. Allavega ekki ef marka má viðtökur á sportbílnum Phantom Coupe, sem Rolls Royce kynnti á dögunum. Fyrstu vikuna frá því að bíllinn var kynntur voru pantaðir alls 200 bílar. Framleiðsla á hverju eintaki af Rolls Royce er tímafrek og þetta þýðir að þeir kaupendur sem koma núna verða að bíða fram á mitt ár 2009 til að fá úthlutað bíl. Phantom Coupe er tveggja dyra og sporlegri en það sem menn eiga að venjast frá Rolls Royce. Að sögn fyrirtækisins er hann hinn fullkomni fararskjóti í lengri ferðir og kjörinn í ferðir milli heimsálfa. Undir húddinu leynist 6,75 lítra, V12 vél sem skilar 453 hestöflum og innandyra eru öll helstu þægindi sem eigendur Rolls Royce eiga að venjast. Enda markmiðið er að bæði ökumaður og farþegar eigi að geta stigið út úr bílnum eftir heilan dag á akstri án þess að finna fyrir þreytu eða þurfa að slétta föt sín. Það er ekki ónýtt fyrir heimsborgara búsettum í Lundúnum sem vill skjótast dagsferð yfir á meginlandið og skella sér í spilavítið í Mónakó. Rolls Royce verksmiðjurnar eru í eigu BMW og að sögn Andrésar Jónssonar kynningarstjóra B&L, umboðsaðila BMW á Íslandi, er lítið mál að panta svona bíl fyrir íslenska bíláhugamenn. „Við fluttum inn tvo bíla árið 2007 þegar við tókum að okkur að Evrópu-frumsýna fyrsta Phantom-týpurnar af Rolls Royce, en þeir bílar voru fluttir beint út aftur eftir sýninguna". Aðspurður segir Andrés markaðinn fyrir Rolls Royce vera lítinn enn sem komið er á Íslandi. „Það er helst að það hafi frést af íslenskum auðmönnum á svona bílum erlendis," segir Andrés. Að sögn Andrésar kostar bíll af þessari gerð í kringum 90 milljónir íslenskra króna hingað kominn, sé miðað við gengisskráningu dagsins í dag. „En vonandi verður gengið bráðum skaplegra. Það ætti að geta gert þennan bíl að raunhæfari kosti fyrir íslenska bíláhugamenn," segir Andrés kíminn.
Mest lesið Stefán Teitur á skeljarnar Lífið Dómararennsli hleypir spennu í seinni undanriðlinn Lífið Frumsýning: Ólafur Darri og Hera Hilmar í glænýrri seríu Bíó og sjónvarp Brunar um á tugmilljón króna glæsibifreið Lífið Sigga Beinteins selur „eðalvagninn“ Lífið Sigga Heimis keypti einbýli í Skerjafirði Lífið Ekki mikið að gera í bransanum eftir líkamsárásina Lífið Íslendingarnir gleymdu mikilvægu hráefni á lokadeginum Lífið 108 kílóum léttari: „Þessi tíu ár í grunnskóla voru eiginlega stanslaust einelti“ Lífið Stendur fyrir auðmannsgleði í Elliðaárdal Menning Fleiri fréttir Stefán Teitur á skeljarnar Dómararennsli hleypir spennu í seinni undanriðlinn Sigga Heimis keypti einbýli í Skerjafirði Sigga Beinteins selur „eðalvagninn“ Að Illuminati stjórni öllu milli himins og jarðar Hera Björk mun kynna stigin Brunar um á tugmilljón króna glæsibifreið 108 kílóum léttari: „Þessi tíu ár í grunnskóla voru eiginlega stanslaust einelti“ Ekki mikið að gera í bransanum eftir líkamsárásina Tekur nú eftir því hversu margir hafa farið í hárígræðslu Ekki smart að amman skipti sér af getnaðinum Þessi lönd komust áfram í úrslit „Ég fæ það bara um leið og ég set hann inn“ Vaktin: Komast Væb-bræður áfram? Einar og Milla eiga von á dreng Egill í SuitUp keypti glæsiíbúð undir fasteignamati „Ég fæddist fyrir þessa stund“ Sögulegt parhús í Hlíðunum Íslendingarnir gleymdu mikilvægu hráefni á lokadeginum Komast ekki áfram nema þeir séu á skjánum María Birta og Elli orðin tveggja barna foreldrar Innlit í best skipulögðu íbúðina á Selfossi Fögur fljóð og töfrandi stund í Haukadal Formleg spá og ítarleg greining á keppendum kvöldsins „Mökkurinn var þéttur og við fórum í gegnum hann“ Pussy Riot og Páll Óskar troða upp til stuðnings flóttafólki Skrýtið að sjá mannfjöldann syngja með á íslensku Halla á hátíðarsýningu Attenborough Norðurljósin séu svalasta undur veraldar Arnar og Sara gáfu syninum nafn Sjá meira