Hluti af eldflaug féll nærri kamri 26. mars 2008 13:45 Fylgst með geimskoti. Myndin tengist ekki fréttinni.
Bóndi, sem rekur býli sitt nærri Baikonur-geimskotstöðinni í Kasakstan, hefur stefnt hinni rússnesku Roskosmos-geimferðastofnun eftir að þriggja metra langur málmhlutur féll af geimflaug og lenti á landareign hans, aðeins steinsnar frá kamrinum. Bóndinn, Boris Urmatov, krefst einnar milljónar rúblna, jafnvirði um 3,1 milljónar króna, í miska- og skaðabætur af geimferðastofnuninni sem hefur aðstöðuna í Kasakstan á leigu. Fólk búsett nærri skotpallinum kveðst hafa orðið vart við fallandi málmhluti í tíma og ótíma en á móti kveðst Roskosmos-stofnunin reglubundið vara íbúa á svæðinu við fyrirhuguðum geimskotum og heldur því fram að það sé samkvæmt áætlun að vissir hlutar geimflauganna falli af þeim skömmu eftir skot. Þeim sé hins vegar ætlað að lenda innan marka vissra svæða. „Ef dómstóll úrskurðar að bætur skuli greiðast greiðum við þær að sjálfsögðu," sagði Alexander Vorobyov, talsmaður Roskosmos-stofnunarinnar. Hann bætti því við að komið hefði fyrir að fólk færði hluta af geimflaugum inn á landareignir sínar og krefðist svo bóta í framhaldinu en slíkt væru auðvitað undantekningartilfelli. Dagblaðið Izvestia greindi frá því að stofnunin hefði einungis einu sinni greitt bætur vegna tjóns af völdum eldflaugahluta, það hefði verið árið 2001 og upphæðin 10.000 rúblur.
Mest lesið Símaupptökur úr Reykholtsmálinu: „Ekki fokking hreyfa þig eða ég mun sparka meira í þig“ Innlent Með stöðu sakbornings vegna banaslyss á Miklubraut Innlent Skilti í setrinu á ensku: „Hjartanlega sammála því að við eigum ekki að hafa þetta svona“ Innlent Ekkert út á Dorriti að setja en frásögn eigenda ekki á rökum reist Innlent Lúsmýið yrði alltaf verra en moskítóflugan Innlent Yfirheyra bandamenn sína í NATO Erlent Senda hermenn gegn glæpasamtökum í „bakgarðinum“ Erlent Lögreglumál: Sátu fastir eftir að slökkt var á parísarhjólinu Innlent Hætta sölu til Japan: Hvalkjötið nýtt í framleiðslu bætiefnis Innlent Hugmyndin góð enda hvalkjöt mun járnríkara en nautakjöt Innlent Fleiri fréttir Átti í samskiptum við eftirhermu starfsmannastjóra Hvíta hússins Yfirheyra bandamenn sína í NATO Ellefu ára fangelsi fyrir að mótmæla stríði Pútíns „Ef Óman þvælist fyrir, sprengjum við þá í tætlur" Réttarhöldin gegn Murdaugh færð, fari þau yfir höfuð fram Senda hermenn gegn glæpasamtökum í „bakgarðinum“ Trump tekur sér stöðu með Norður-Kóreu gegn Suður-Kóreu Hæsta stytta Evrópu af Maríu mey afhjúpuð Úkraína gæti átt heimasmíðaðar skotflaugar innan nokkurra mánaða Kushner mættur til Ísrael Tveir látnir í gróðureldum í Grikklandi Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Eldflaugum og drónum rignir yfir Kænugarð og Moskvu Tólf látnir eftir að ferðamannarúta hafnaði í skurði Fimm særðust í skotárás í bandarískum háskóla Fagnað á götum Kabúl Fannst hann ekki geta haldið áfram Bætist í tölu látinna Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Hótar að gera Hormússundið að bandarísku yfirráðasvæði Tugir látnir eftir stóran jarðskjálfta Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn Önnur lestin af sporinu á innan við sólarhring Mangione játar sök: „Ég skaut herra Thompson og hann lést“ Biður hæstarétt um grænt ljós á veislusalinn „Óumflýjanlegt“ að sjúkdómar blossi aftur upp vegna aðgerða Bandaríkjanna Í basli með að finna nýjan sendiherra í Washington DC Trump skipar sjóhernum að notast aftur við gufu Gróður brennur beggja vegna Ermarsunds Sektaður fyrir að nota þokulúður til að vekja ísbjörn Sjá meira