Um 440 þúsund sóttu leikhús í fyrra 25. mars 2008 09:30 MYND/Pjetur
Áætlað er að um 440 þúsund manns hafi sótt sýningar leikhúsa, atvinnuleikhópa og áhugaleikfélaga hér á landi á leikárinu 2006-2007. Þessi fjöldi samsvarar því að hver landsmaður sæki leikhús 1,4 sinnum á ári. Fram kemur á vef Hagstofunnar að leikuppfærslur hafi samtals verið tæplega 250 og heildarfjöldi sýninga rétt um 2.800. Tölur Hagstofunnar sýna enn fremur að frá árinu 2000/2001 til síðasta leikárs hafi hafi gestum fjölgað um tæplega 48 þúsund, eða um 12 af hundraði. Heildarfjöldi leiksýningargesta á síðasta leikári nam nærri 30 prósentum af heildaraðsókn kvikmyndahúsanna árið 2006. Sjö atvinnuleikhús með aðstöðu í sex leikhúsum voru starfrækt á síðasta ári. Á vegum þeirra voru 13 leiksvið með um 3.000 sætum. Leikhúsin settu 95 uppfærslur á svið hér innanlands, þar af voru leikrit flest, eða 63 talsins. Samanlagður fjöldi sýninga var 1.224. Uppærslur með verkum eftir íslenska höfunda voru 37, en eftir erlenda 51. Uppfærslur með verkum eftir innlenda og erlenda höfunda voru sjö. Leikhúsgestir voru tæplega 260 þúsund að meðtöldum samstarfsverkefnum og gestasýningum. Sýningargestum fækkaði lítillega frá fyrra leikári, eða um nærri þrjú þúsund. Atvinnuleikhópum hefur fjölgað umtalsvert Atvinnuleikhópum hefur fjölgað talsvert undanfarin ár, eða úr 22 leikárið 2000/2001 í 38 í fyrra. Uppfærslum á þeirra vegum hefur fjölgað að sama skapi, en á síðasta leikári færðu atvinnuleikhópar upp á svið innanlands 79 verk samanborið við 30 á leikárinu 2000/2001. Tölur Hagstofunnar sýna enn fremur að á næstliðnu leikári voru starfandi 40 áhugaleikfélög víðs vegar um landið. Uppfærslur á vegum félaganna voru á síðasta leikári 89 eða litlu fleiri en á leikárinu á undan. Tvær af hverjum þremur uppfærslum voru eftir innlenda höfunda. Samanlagður fjöldi flytjenda á síðasta leikári var um 1.450 manns. Félögin sýndu 498 sinnum fyrir um 30 þúsund gesti.
Mest lesið Vaktin: Austanbylur annan í páskum Veður „Þetta er algjör hetjudáð að fara þarna upp á“ Innlent Rúta valt á Kjalarnesi Innlent Stærðar gámur valt af Fjósakletti og lenti á hvolfi Innlent Vanhæfi fyrirtækisins til að sinna skyldum sínum sé algert Innlent Íranska þjóðin fagni sprengjuregni Erlent Fjær að heiman en nokkur maður frá upphafi Erlent Bíll við bíl á Hellisheiði eftir að heyrúllur féllu á veginn Innlent Virkjuðu flugslysaáætlun á Akureyri Innlent Lilja mætt aftur á Alþingi Innlent Fleiri fréttir Eldri borgarar verið í lífshættu vegna ábyrgðarleysis framkvæmdaaðila Virkjuðu flugslysaáætlun á Akureyri Stærðar gámur valt af Fjósakletti og lenti á hvolfi Rotaðist eftir að hafa fokið á höfuðið Flugmönnum leyfist að gera mistök í flughermi „Þetta er algjör hetjudáð að fara þarna upp á“ Rúta valt á Kjalarnesi Fastir bílar, fall af hestbaki og þakkjölur við það að losna Tuttugu þúsund á hvern illa búinn hjólbarða Vanhæfi fyrirtækisins til að sinna skyldum sínum sé algert Bíll við bíl á Hellisheiði eftir að heyrúllur féllu á veginn Lilja mætt aftur á Alþingi Óveðrið hefur áhrif á flugáætlun Icelandair Vanalega óttist fólk að eitthvað hræðilegt sé að gerast Lýstu eftir manni á níræðisaldri „Skynsamlegt að spyrja þjóðina“ Snjóflóð hrifsaði með sér göngugarpa Fólk stillt að mestu á Akureyri „Stórslysalaust“ á Ísafirði í nótt Hvernig greiðir Ragnar Þór atkvæði í ágúst? Gefur skít í helvítishótanir Trumps Viðreins býður fram sinn fyrsta lista á Akranesi Unnið að tillögum um lengingu brimvarnargarða Landeyjahafnar „Vatnsbólið er nánast tómt, það er að tæmast“ Hleypt inn í hollum í Vesturbæjarlaug Eldri borgarar einmana en eigi erfitt með að rífa sig upp á ný Segir stjórnvöld vinna gegn ferðaþjónustunni „Það er munur á karllíkama og kvenlíkama“ Mæla gegn því að ganga ofar en að Steini í Esjunni Óvissa í ferðaþjónustu og stuð á Aldrei fór ég suður Sjá meira