Sáu yfir í Héðinsfjörð úr gangamunnanum 24. mars 2008 18:54
Bormenn Héðinsfjarðarganga slógu í gegn á föstudag og gátu þá horft Siglufjarðarmegin úr göngunum yfir í Héðinsfjörð. Fögnuður þeirra var mikill þegar þeir sáu glitta í fjörðinn. Héðinsfjarðargöng samanstanda af tvennum göngum sem annars vegar liggja frá Siglufirði yfir í Héðinsfjörð og hins vegar úr Héðinsfirði yfir í Ólafsfjörð. Samanlagt eru göngin um 11 kílómetrar að lengd og af því eru göngin milli Siglufjarðar og Héðinsfjarðar um 3,7 kílómetrar. Eins og við greindum frá í fréttum hér á Stöð 2 á föstudaginn langa hefur framkæmdum frá Siglufirði miðað betur en áætlað var en þá slógu verkamenn í gegn og hægt var að horfa frá Siglufirði yfir til Héðinsfjarðar. Verkamennirnir fögnuðu áfanganum um helgina en almenningi gefst þó ekki kostur á að fara um göngin alveg strax eða ekki fyrr en búið verður að styrkja bergvegginn og þétta. Nú þegar þessum áfanga er lokið á eftir að sprengja um 40 prósent af heildarlengd ganganna tveggja. Ekki hefur gengið eins vel að sprengja Ólafsfjarðarmegin vegna vatns og bergþéttinga en áætluð verklok eru í desember á næsta ári. Þá verður hægt að aka úr Siglufirði yfir til Ólafsfjarðar í gegnum göngin tvö sem styttir leiðina á milli staðana um rúma 50 kílómetra.
Mest lesið Vaktin: Austanbylur annan í páskum Veður „Þetta er algjör hetjudáð að fara þarna upp á“ Innlent Rúta valt á Kjalarnesi Innlent Stærðar gámur valt af Fjósakletti og lenti á hvolfi Innlent Vanhæfi fyrirtækisins til að sinna skyldum sínum sé algert Innlent Íranska þjóðin fagni sprengjuregni Erlent Fjær að heiman en nokkur maður frá upphafi Erlent Bíll við bíl á Hellisheiði eftir að heyrúllur féllu á veginn Innlent Virkjuðu flugslysaáætlun á Akureyri Innlent Lilja mætt aftur á Alþingi Innlent Fleiri fréttir Eldri borgarar verið í lífshættu vegna ábyrgðarleysis framkvæmdaaðila Virkjuðu flugslysaáætlun á Akureyri Stærðar gámur valt af Fjósakletti og lenti á hvolfi Rotaðist eftir að hafa fokið á höfuðið Flugmönnum leyfist að gera mistök í flughermi „Þetta er algjör hetjudáð að fara þarna upp á“ Rúta valt á Kjalarnesi Fastir bílar, fall af hestbaki og þakkjölur við það að losna Tuttugu þúsund á hvern illa búinn hjólbarða Vanhæfi fyrirtækisins til að sinna skyldum sínum sé algert Bíll við bíl á Hellisheiði eftir að heyrúllur féllu á veginn Lilja mætt aftur á Alþingi Óveðrið hefur áhrif á flugáætlun Icelandair Vanalega óttist fólk að eitthvað hræðilegt sé að gerast Lýstu eftir manni á níræðisaldri „Skynsamlegt að spyrja þjóðina“ Snjóflóð hrifsaði með sér göngugarpa Fólk stillt að mestu á Akureyri „Stórslysalaust“ á Ísafirði í nótt Hvernig greiðir Ragnar Þór atkvæði í ágúst? Gefur skít í helvítishótanir Trumps Viðreins býður fram sinn fyrsta lista á Akranesi Unnið að tillögum um lengingu brimvarnargarða Landeyjahafnar „Vatnsbólið er nánast tómt, það er að tæmast“ Hleypt inn í hollum í Vesturbæjarlaug Eldri borgarar einmana en eigi erfitt með að rífa sig upp á ný Segir stjórnvöld vinna gegn ferðaþjónustunni „Það er munur á karllíkama og kvenlíkama“ Mæla gegn því að ganga ofar en að Steini í Esjunni Óvissa í ferðaþjónustu og stuð á Aldrei fór ég suður Sjá meira