Höfuðkúpan notuð sem öskubakki 24. mars 2008 18:51
Höfuðkúpan sem fannst á leiksvæði við Meðalfellsvatn í gærdag er rakin til hjólhýsis sem þar stóð síðasta sumar. Niðurstöður bráðabirgðarannsóknar sína að höfuðkúpan er líklega úr konu eða barni sem lést fyrir tíu til þrjátíu árum. Það er ekki á hverjum degi sem mannabein finnast á víðavangi og því var heimamönnum við Meðalfellsvatn brugðið þegar maður gekk þar fram á höfuðkúpu. Maðurinn var ásamt tveimur börnum að leik hér þegar þau gengu fram á hauskúpuna þar sem hún lá hér innan um annað drasl á jörðinni. Maðurinn kallaði til lögreglu sem sendi tæknideild sína á staðinn til að kanna hvort fleiri bein væri þar að finna. Svo reyndist ekki vera og sýndi frumrannsókn á höfuðkúpunni að hún er líklega úr konu eða barni sem lést fyrir 10 til 30 árum. Snemma í gærkvöldi gaf sig fram kona til lögreglu sem sagðist kannast við að eiga hauskúpuna Hauskúpan var úr hjólhýsi sem stóð hér á þessum stað allt þar til í vetur þegar það fauk um koll í vondu veðri og sprakk. Samkvæmt heimildum fréttastofu hafði hún þar verið notuð sem öskubakki í nokkurn tíma. Lögreglan rannsakar nú hvort skýringar konunnar eigi við rök að styðjast. Konan ku samkvæmt heimildum fréttastofu ekki vita hver uppruni höfuðkúpunnar er en lögreglan reynir nú að hafa uppi á manni sem talið er að geti veitt frekari upplýsingar um málið. Að sögn Friðriks Smára Björgvinssonar, yfirlögregluþjóns þá er ekki ljóst á þessari stundu hvort málið teljist til sakamála enda uppruni höfuðkúpunnar óljós og aldursgreining hennar ónákvæm. Á heimsíðu Kjósahrepps er haft eftir eiganda höfuðkúpunnar að honum hafi sett hroll við tilhugsunina um að í húsakynnum sínum hafi verið raunverulegt mannabein.
Mest lesið Vaktin: Austanbylur annan í páskum Veður „Þetta er algjör hetjudáð að fara þarna upp á“ Innlent Rúta valt á Kjalarnesi Innlent Stærðar gámur valt af Fjósakletti og lenti á hvolfi Innlent Vanhæfi fyrirtækisins til að sinna skyldum sínum sé algert Innlent Fjær að heiman en nokkur maður frá upphafi Erlent Íranska þjóðin fagni sprengjuregni Erlent Bíll við bíl á Hellisheiði eftir að heyrúllur féllu á veginn Innlent Lilja mætt aftur á Alþingi Innlent Fastir bílar, fall af hestbaki og þakkjölur við það að losna Innlent Fleiri fréttir Virkjuðu flugslysaáætlun á Akureyri Stærðar gámur valt af Fjósakletti og lenti á hvolfi Rotaðist eftir að hafa fokið á höfuðið Flugmönnum leyfist að gera mistök í flughermi „Þetta er algjör hetjudáð að fara þarna upp á“ Rúta valt á Kjalarnesi Fastir bílar, fall af hestbaki og þakkjölur við það að losna Tuttugu þúsund á hvern illa búinn hjólbarða Vanhæfi fyrirtækisins til að sinna skyldum sínum sé algert Bíll við bíl á Hellisheiði eftir að heyrúllur féllu á veginn Lilja mætt aftur á Alþingi Óveðrið hefur áhrif á flugáætlun Icelandair Vanalega óttist fólk að eitthvað hræðilegt sé að gerast Lýstu eftir manni á níræðisaldri „Skynsamlegt að spyrja þjóðina“ Snjóflóð hrifsaði með sér göngugarpa Fólk stillt að mestu á Akureyri „Stórslysalaust“ á Ísafirði í nótt Hvernig greiðir Ragnar Þór atkvæði í ágúst? Gefur skít í helvítishótanir Trumps Viðreins býður fram sinn fyrsta lista á Akranesi Unnið að tillögum um lengingu brimvarnargarða Landeyjahafnar „Vatnsbólið er nánast tómt, það er að tæmast“ Hleypt inn í hollum í Vesturbæjarlaug Eldri borgarar einmana en eigi erfitt með að rífa sig upp á ný Segir stjórnvöld vinna gegn ferðaþjónustunni „Það er munur á karllíkama og kvenlíkama“ Mæla gegn því að ganga ofar en að Steini í Esjunni Óvissa í ferðaþjónustu og stuð á Aldrei fór ég suður Þrír vistaðir í fangaklefa og einn fluttur á bráðamóttöku Sjá meira