Elísabet átti bestu kynlífslýsinguna 19. mars 2008 17:47 Pétur Blöndal, forseti lestrarfélagsins Krumma og Lárus Blöndal stjórnarmaður færa Elísabetu Jökulsdóttur rauðu hrafnsfjöðrina.
Elísabet Jökulsdóttir hreppti í gær Rauðu hrafnsfjöðrina fyrir athyglisverðustu kynlífslýsinguna í bókmenntum liðins árs. Í Heilræðum lásasmiðsins lýsir Elísabet sambandi sínu við Algea, mann sem hún kynntist á ferðalagi í New York. Í umsögn lestrarfélagsins Krumma, sem veitir verðlaunin segir að kynlífslýsingar Elísabetar hafi þóttu krassandi, erótískar, snjallar og innblásnar af andagift. Tvær lýsinganna sem dómnefndin féll fyrir: „Við vorum falleg í rúminu, hann svartur og ég hvít. Samt hugsaði ég ekki um að hann væri svartur. Hann var maður sem mig langaði að elska. Og langaði tilað elskaði mig. Það var fallegt að við vorum ekki eins á litinn en ég hélt því fyrir mig. Hann var svo viðkvæmur fyrir því að vera svartur og það var ég auðvitað líka, en kannski var ég viðkvæm fyrir því að vera hvít. Ég hugsaði stundum: Skyldi hann ekki langa í svarta konu. Mér fannst við passa vel saman en vildi ekki segja það. Hann hefði talið að ég vildi gera okkur falleg saman því við vorum hvít og svört. Blanda einhverju saman sem blandaðist ekki. Ég fann að hann elskaði mig og var undrandi. En yfirlýsing hans: Svartir menn kyssa aldrei píkuna á konunum sínum, hljómaði einsog byrjunarsetning í aðskilnaðarbæklingi. Ég var viss um að hann meinti: Svartir menn kysa aldrei píkuna á hvítum konum. Þetta var svo fáránlegt að ég meikaði ekki að tala um það. Hann var veikur fyrir að láta sjúga typpið á sér, þótt ég gerði það meira fyrir sjálfa mig. En sagði mér í óspurðum fréttum að sæðið væri gott fyrir húðina." „Stundum talaði ég og talaði í samförum. Ég þoldi ekki dramatískar þöglar samfarir þarsem allt hvarf inn í þögnina. Ég var veik fyrir röddum. Hann gat fullnægt mér með röddinni. Talaðu við mig og ég kem. Röddin kom úr þessum líkama sem ég þráði að fá inní mig. Mér fannst gott að hann segði eitthvað, bara eitthvað, og allt fór af stað inní mér. Svo reyndi ég að fá hann til að segja eitthvað ljótt eða dónalegt en hann hló að mér. Sagðist ekki vanur að tala í samförum, sagði að samfarir slitu sambandið. Mér fannst að þögnin tæki nándina í burtu, röddin væri hluti af líkamanum, blæbrigðarík og auðug, valdatæki. Ég var ekki síblaðrandi og það var einsog hann lærði að tala, uppgötvaði röddina. En auðvitað var hann að taka frá mér tungumálið einsog karlmenn gera við konur og hafa gert svo lengi, þetta flæði sem getur molað á þeim hausinn og fært okkur það á silfurfati." Verðlaunin voru fyrst veitt í fyrra, en þá hlaut Eiríkur Örn Norðdahl fjöðrina.
Mest lesið Stjörnulífið: Heiðdís Rós komin heim Lífið Vill skapa staðinn sem sonur hennar þurfti en fann aldrei Lífið Sló pabba út með að kasta sér yfir línuna Lífið „Ég er svolítið svífandi á bleiku skýi“ Lífið Fyrsta platan í tuttugu ár Lífið Myndaveisla: Stjörnufans fyrir norðan á Einni með öllu Lífið IceGuys boða sína síðustu tónleika: Sonur Arons Can gerði allt vitlaust Tónlist Innipúki er ekki það sama og fýlupúki Lífið „Við getum ekki kvartað undan veðrinu“ Lífið Klukkutíma bröns getur kostað marga daga í rúminu Lífið Fleiri fréttir Fyrsta platan í tuttugu ár Stjörnulífið: Heiðdís Rós komin heim Myndaveisla: Stjörnufans fyrir norðan á Einni með öllu „Ég er svolítið svífandi á bleiku skýi“ Sló pabba út með að kasta sér yfir línuna Vill skapa staðinn sem sonur hennar þurfti en fann aldrei Innipúki er ekki það sama og fýlupúki „Við getum ekki kvartað undan veðrinu“ Klukkutíma bröns getur kostað marga daga í rúminu Krakkatía vikunnar: Hungurleikar, biskup og geirfuglinn Big Pussy er látinn Fréttatía vikunnar: Vasaþjófar, KFC og morðhótanir Fiðrildi og flugeldar í maganum í Herjólfsdal Selur aflátsbréf fyrir forsjálustu syndgara helgarinnar Loðinn laumufarþegi sníkti far frá Úlfarsfelli Þjóðhátíð sett í blíðviðri í Eyjum Hættur í Jesus Christ Superstar eftir útgáfu lags til stuðnings Ísrael Ískaldur töffari, skapstór snillingur og afkastamikill vinnuþjarkur Árið sem skytturnar fjórar kvöddu Sam Smith trúlofað Halla Hrund og uglurnar þrjár Útför Megasar Gerði sátt við aðstoðarkonuna sem sakaði hann um nauðgun „Þegar við sáum kastalann var ekki aftur snúið“ Gladiator kveikti neistann við brennuna og úr varð ódauðlegt þjóðhátíðarlag Kíkti í kaffi til kanslarans Hvað veistu um… skák? „Ég hef aldrei brotið kynferðislega á neinum á ævi minni“ Madison Beer trúlofast NFL-kappa Sonurinn fékk nafnið Isaiah Ellason Fox Sjá meira