Innlent

Lítil ástæða til örvæntingar á fasteignamarkaði

Remax-menn undirrita samning. Myndin tengist ekki fréttinni.
Remax-menn undirrita samning. Myndin tengist ekki fréttinni.

Þórarinn Arnar Sævarsson, einn af eigendum íslenska hluta fasteignasölukeðjunnar Remax, telur ekki ástæðu til að gera mikið úr döpru ástandi á fasteignamarkaði um þessar mundir. „Kaupsamningar eru jafnmargir núna og árið 2003, fasteignir eru helmingi dýrari núna en 2003 og sölulaun eru 10 - 15% hærri en árið 2003 þannig að tekjurnar í greininni eru nokkurn veginn þær sömu og árið 2003 að teknu tilliti til verðbólgu. Tvö bestu ár Íslandssögunnar voru 2006 og 2007 og auðvitað eru menn bara að lenda núna eftir það góðæri, það hefur fjölgað um 300 manns í greininni síðastliðin 3 - 4 ár," sagði Þórarinn og bætti því við að Remax ætti eftir að auka verulega við markaðshlutdeild sína á þessu ári. Miðað við síðustu áramót segir Þórarinn starfsmönnum Remax aðeins hafa fækkað um tvo.

„Það er alls engin kreppa á fasteignamarkaði, það er kreppa á fjármálamarkaði, mikill fjöldi tilboða fellur vegna þess að fólk fær ekki lán til að kaupa. Þetta ástand mun að mínu mati vara fram á haust en eftir það tekur við hægur bati og svo byrjar verðið að hækka aftur árið 2010," sagði Þórarinn og benti á að nú væri staðan bara svipuð og hún var áður en bankarnir komu inn á fasteignalánamarkaðinn fyrir fjórum árum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×