Erlent

Fimmtán særðir eftir sprengingu í Maníla

Úr myndasafni.
Úr myndasafni. MYND/AFP

Fimmtán manns særðust, þar af tveir alvarlega, í sprengingu nærri forsetahöllinni í Maníla á Fillippseyjum í morgun.

Að sögn lögreglu er rannsakað hvort sprengingin tengist deilum tveggja stúdentahópa í borginni en hlutar úr handsprengju og heimatilbúnum kveikibúnaði fundust á háskólasvæði í borginni. Karlmaður í rauðri skyrtu og með brúna derhúfu sást hlaupa frá vettvangi og hafa þrír stúdentar verði handteknir vegna málsins og verið er að yfirheyra þá.

Gloria Arroyo, forseti landsins, var ekki í höllinni þegar sprengingin varð en sprengjan sprakk um 300 metra frá höllinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×