Erlent

Lést af sárum sínum eftir átök í Mitrovica

Úkraínskur lögreglumaður lést af sárum sínum eftir átök sem blossuðu upp í Norður-Kosovo í gær. Maðurinn var að störfum þar á vegum Sameinuðu þjóðanna.

Til átaka kom milli lögreglumanna og friðargæsluliða Atlantshafsbandalagsins annars vegar og nokkur hundruð Serba í Mitrovica þegar gæsluliðar og lögregla reyndu að rýma dómhús í borginni. Skipst var á skotum og handsprengjum kastað.

Átökin voru þau verstu frá því Albanar í Kosovo lýstu yfir sjálfstæði héraðsins frá Serbíu í síðasta mánuði. Serbar segja Kosovo órjúfanlegan hluta Serbíu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×