Erlent

Mannskæð árás við mosku í Írak í gær

Minnst fimmtíu og tveir féllu og sjötíu og fimm særðust í sjálfsvígssprengjuárás í hinni helgu borg Karbala í Írak í gær.

Árásin var gerð nærri helgidómi sjíamúslima þar í borg. Árásin er sú mannskæðasta í Kerbala í tæpt ár. Vitni segja að kona hafi gengið að byggingunni og sprengt sig í loft upp.

Lögreglustjórinn í Kerbala segir hins vegar að fjarstýrðri sprengju hafi verið komið fyrir. Grunur leikur á að liðsmenn al-Qaida hryðjuverkasamtakanna beri ábyrgð á ódæðinu. Árásin í gær er ein margra sem hafa verið gerðar síðustu daga og hafa kostað sjötíu og átta Íraka lífið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×