Innlent

Friðarsúlan tendruð í viku í kringum páska

MYND/Valur Hrafn

Friðarsúla Yoko Ono í Viðey verður tendruð á miðvikudag og mun hún loga í eina viku.

Fram kemur í tilkynningu frá menningar- og ferðamálasviði borgarinnar að í tengslum við þessa friðarviku standi alþjóðlegu sjálfboðaliðasamtökin AUS og Höfuðborgarstofa fyrir dagskrá í Viðey að kvöldi skírdags, 20. mars, á vorjafndægri.

Þá verður Viðeyjarstofa opin og geta gestir fengið sér hressingu. Enn fremur verður ljósmyndasýning í eynni og boðið upp á næturljósmyndun með friðarsúluna sem viðfangsefni.

Áður en friðarsúlan verður tendruð verða ljósahnettir sendir á loft, barnakór syngur lög frá ýmsum löndum og viðstöddum verða boðin stjörnuljós og friðarkerti.

Ferðir til Viðeyjar verða farnar kl. 19 og 20, frá Viðey kl. 21.30 og 22. Upplýsingar um verð og brottfararstað er að finna á www.elding.is.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×