Erlent

Forkosningar í Flórída ekki endurteknar

Demókratar á Flórída hafa ákveðið að endurtaka ekki forkosningarnar í ríkinu eins og áform voru um.

Hillary Clinton vildi að kosningarnar yrðu endurteknar en Barak Obama var á móti því. Stjórn flokksins í Flórída segir að kosningarnar yrðu ekki endurteknar nema þau bæði væru hlynnt slíku.

Sem kunnugt er af fréttum ákvað landsstjórn Demókrata að Flórída og Michigan fengju ekki kjörmenn á landsþinginu í sumar þar sem dagsetning kosningana hafði verið færð framar á árinu í óþökk flokksins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×