Umdeilt buxnafrumvarp í Florida 17. mars 2008 16:51 Florida sker upp herör gegn buxum á hælum.
Öldungadeild Bandaríkjaþings hefur nú til afgreiðslu lagafrumvarp þingmannsins Gary Siplin frá Orlando sem mun, verði það að lögum, banna nemendum í almenningsskólum Florida-ríkis að ganga um með buxurnar hálfa leið niður um sig sem þótt hefur tíska. Nú þegar hafa nokkrar borgir og bæir í Suðurríkjum Bandaríkjanna sett reglur til höfuðs slíkri buxnanotkun þar sem jafnvel er lögð fangelsisrefsing við ítrekuðum brotum en Florida yrði fyrsta ríkið til að banna hana með lögum. Fylgismenn frumvarpsins segja skólayfirvöld gjarna slá slöku við í að framfylgja reglum um klæðaburð og oft hafi foreldrar litla hugmynd um hverju börn klæðist í skólum. Gagnrýnendur halda því hins vegar fram að lögin séu óþörf og klæðaburður skólabarna ætti að vera á ábyrgð kennsluyfirvalda og foreldra - ekki barnanna sjálfra. Gary Siplin, flutningsmaður frumvarpsins, segir að rekja megi táknfræði þessarar buxnatísku til fangelsa en innan veggja þeirra hafi það verið túlkað sem beiðni um kynlíf að bera buxurnar lágt. Síðar hafi rapptónlistarmenn tekið fyrirbærið upp á arma sína og breitt það út. „Tilgangurinn er að benda nemendum á að þessi tíska er ekki sprottin úr góðum jarðvegi," sagði Siplin sem telur að rétt bornar buxur hjálpi nemendunum síðar meir til að ljúka háskólagráðu og fá vinnu. Reuters greindi frá.
Mest lesið „Hvað eruð þið að biðja mig um og hvers vegna? Hvar ætti ég að hafa dvalið?“ Innlent „Ég var gjörsamlega svo hissa að ég vissi ekki hvert ég ætlaði“ Innlent Bretar og Frakkar ætla að leiða aðgerðir við Hormússund Erlent Miðflokkurinn á Hornafirði segir ásakanirnar fjarri sanni Innlent Leiðir saman týnda hluti og eigendur þeirra Innlent Meirihlutinn fallinn samkvæmt nýrri könnun Innlent Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Innlent Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Innlent Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Innlent „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Innlent Fleiri fréttir Bretar og Frakkar ætla að leiða aðgerðir við Hormússund Hormússundið opið á ný Vopnaðir ræningjar héldu 25 í gíslingu í banka á Ítalíu D4vd handtekinn vegna gruns um að hafa banað táningsstúlku Mandelson veitt öryggisheimild þrátt fyrir að hafa fallið á bakgrunnsathugun Brothætt vopnahlé í Líbanon hefur tekið gildi Boðar tíu daga vopnahlé milli Ísraels og Líbanon Páfinn skaut föstum skotum að harðstjórum Íranir geti valið auðveldu leiðina eða þá erfiðu Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Viðræður sagðar standa yfir en ekkert fast í hendi Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Gríðarleg vonbrigði meðal kennara með orð Ingu Sæland í morgun Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Sjá meira