Innlent

Stúlka féll sex metra úr rúllustiga

Yfirlitsmynd yfir verslunarmiðstöðina við Glerártorg.
Yfirlitsmynd yfir verslunarmiðstöðina við Glerártorg.

Fjögurra ára gömul stúlka slasaðist þegar hún féll um sex metra niður úr rúllustiga í nýrri verslun Rúmfatalagersins á Glerártorgi á Akureyri í dag. Stúlkan var í fylgd ættingja þegar slysið varð. Hún var flutt á slysadeild í sjúkrabíl.

Ekki hafa fengist nánari upplýsingar um líðan stúlkunnar en hún féll niður á teppalagt gólf.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×