Innlent

Flest skíðasvæði opin í dag

Í Bláfjöllum er heiðskírt í dag og færi með besta móti.
Í Bláfjöllum er heiðskírt í dag og færi með besta móti. MYND/sg

Öll helstu skíðasvæði landsins eru opin í dag. Í Bláfjöllum og Skálafelli verður opið til klukkan sex en þar er um þriggja stiga frost og aðstæður til skíðaiðkunar með besta móti.

Í Hlíðarfjalli á Akureyri er sex stiga frost, bjart og mjög gott skíðafæri. Sömu sögu er að segja frá Ísafirði en þar eru allar lyftur opnar. Skíðasvæði Tindastóls í Skagafirði verður opnað klukkan ellefu en þar er um tíu stiga frost.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×