Innlent

Ný heilsugæslustöð rís í Árbæjarhverfi

Smíði nýrrar heilsugæslustöðvar í Árbæjarhverfi í Reykjavík er hafin og stóð til að heilbrigðisráðherra skrifaði undir leigusamning um húsnæðið nú laust fyrir hádegi.

Stöðin rís við Hraunbæ 115 og verður tæpir 2800 fermetrar að flatarmáli á tveimur hæðum og er áformað að hún verði opnuð 1. desember næstkomandi.

Auk heilsugæslustöðvarinnar verður apótek staðsett í húsnæðinu sem og velferðarþjónusta Reykjavíkurborgar en sameina á undir sama þaki velferðar- og heilbrigðisþjónustu fyrir Árbæinga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×