Dagur segir borgarstjóra hafa frestað tillögu frá meirihluta 14. mars 2008 12:52 Dagur segir að borgarstjóri hafi frestað því að ræða um lestir í borgarráði.
Dagur B. Eggertsson, oddviti Samfylkingarinnar segir að Ólafur F. Magnússon borgarstjóri hafi farið fram á frestun á sameiginlegri tillögu allra borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins. Tillagan gekk út á að kanna hagkvæmni þess og fýsileika að koma á lestarsamgöngum milli Keflavíkurflugvallar og miðborgar Reykjavíkur og léttlestakerfi í Reykjavík.Gísli Marteinn Baldursson, fulltrúi Sjálfstæðisflokks í Borgarráði vill ekki segja hver fór fram á frestunina og segir að Dagur eigi ekki að tjá sig um hvað einstakir menn í borgarráði geri á fundum.„Til nokkurra orðaskipta kom um málið en nánast er óþekkt að borgarstjóri fresti undirbúinni tillögu eigin félaga í meirihluta á fundum borgarráðs," segir Dagur í tölvuskeyti sem hann sendi Vísi. Dagur segir að upphaf málsins megi rekja til tillögu minnihlutans um könnun á lestarsamgöngum sem kom í kjölfar niðurstaðinnar hugmyndasamkeppni um heildarskipulag Vatnsmýrarinnar og var lögð fram í borgarráði 21. febrúar síðastliðinn.Dagur segir að í borgarráði í gær hafi verið lögð fram jákvæð umsögn umhverfis- og samgönguráðs um þá tillögu „ásamt því að fulltrúar Sjálfstæðisflokksins gerðu hana að sinni," bætir hann við. Ennfremur segist Dagur hafa fært borgarráði „kveðjur samgönguráðherra sem er jákvæður fyrir samstarfi um málið og því að deila kostnaði til helminga við úttektina. Verður fróðlegt í meira lagi að fylgjast með hvort frestun borgarstjóra á málinu hafi eitthvað að segja."„Það var nú bara þannig að við ætlum að skoða þetta aðeins betur," segir Gísli Marteinn Baldursson, Sjálfstæðisflokki í samtali við Vísi. Hann vill ekki segja hver hafi farið fram á frestunina og segir að Dagur eigi ekki að tjá sig um hvað einstakir menn segja á borgarráðsfundum. „Það voru einhverjir sem vildu skoða þetta betur, hvort um væri að ræða raunhæfa kostnaðaráætlun og þar fram eftir götunum."„Ég er áhugasamur um að menn skoði þetta vel og við sjáum hvað kemur út úr þessari könnun," segir Gísli og vill ekki gangast við því að Sjálfstæðismenn hafi gert hugmynd minnihlutans að sinni. „Þetta er bara byggt á tillögu þeirra sem var vísað til umhverfis- og samgöngusviðs og var tekið þar til umfjöllunnar," segir Gísli og bætir við: „Það er framfarasinnað fólk í öllum flokkum sem hefur áhuga á þessu máli."Ekki náðist í Ólaf F. Magnússon, borgarstjóra.
Mest lesið Öðru embætti falið að rannsaka andlátið Innlent Sláandi niðurstöður um afstöðu Dana til sambandsins við Bandaríkin Erlent „Svona rosaleg vanlíðan getur ekki staðið endalaust“ Innlent Segir vonbrigðin með prinsessuna rista djúpt Erlent Rétt var að svipta Guðmund Karl lækningaleyfinu Innlent Þrettán ára synti fjóra kílómetra til að bjarga fjölskyldu sinni Erlent Tveir handteknir í tengslum við andlát í Vestmannaeyjum Innlent Fórnarlömb vilja láta loka á Epstein-skjölin Erlent Átta frambjóðendur VG berjast um þrjú sæti á lista í Reykjavík Innlent Ákærður í 38 liðum og löng biðröð fyrir utan réttinn í Osló Erlent Fleiri fréttir Grafið í háspennustreng í Urriðaholti Skæð fuglaflensa í villtum fuglum á höfuðborgarsvæðinu Fara fram á gæsluvarðhald yfir starfsmönnum Hraunbúða Andlát í Eyjum til rannsóknar og listería á Vitatorgi Ekki staðfest að veikindi fimm tengist listeríu í salati Árekstur í Urriðaholti Miðflokkurinn býður fram í Vestmannaeyjum Kona kastaði flösku í höfuð manns Öðru embætti falið að rannsaka andlátið Rétt var að svipta Guðmund Karl lækningaleyfinu Átta frambjóðendur VG berjast um þrjú sæti á lista í Reykjavík Litlar breytingar á fylgi flokkanna Nakinn á rölti og hrækt í hár ökumanns „Svona rosaleg vanlíðan getur ekki staðið endalaust“ Þriðjungi finnst erfitt að fylgjast með fréttum Segir loðnuna allsstaðar kveikja vertíðarstemningu „Þá kemur bara allt í einu högg“ Tveir handteknir í tengslum við andlát í Vestmannaeyjum Gagnrýnir stjórnvöld um sinnuleysi vegna fæðuöryggis þjóðarinnar Brottvísanir verði beittasta vopnið Fjölskyldunni vísað til Rússlands en örlög föðurins óljós Fækka sýslumönnum í einn Óttaðist um líf sitt þegar árásin stóð sem hæst Loka framleiðslueldhúsi vegna listeríu Eygló landpóstur greiðir 45 þúsund krónum meira: „Er ekki venjulegt fólk á landsbyggðinni?“ Einum Bifrastarkennaranna sagt upp fyrir ótengdar sakir Vilja ekki óundirbúnar fyrirspurnir í borgarstjórn Kári Stefánsson fordæmir vinnubrögð Moggans Vilja kengbeygja kvenfélagið og krefjast Ketiláss alls Skýr skilaboð um að það borgi sig ekki að leita til Íslands Sjá meira