Innlent

Tæplega hundrað með salmonellu eða kampýlóbakter í fyrra

Níutíu og þrír greindust með salmonellusýkingu hér á landi í fyrra samkvæmt upplýsingum frá sýkladeild Landspítalans. Aðeins16 þessara smita eru talin vera af innlendum uppruna.

Greint er frá þessu í Farsóttarfréttum Landlæknis og bent á að það sé svipaður fjöldi og greinst hefur undanfarin ár. Ekki varð vart við hópsýkingar af völdum salmonellu á árinu. Í 64 tilfellum er uppruni smitsins í öðrum löndum og í 16 tilfellum er óvíst um uppruna smitsins.

Algengustu löndin þar sem fólk smitast eru Spánn og þar á eftir er Tyrkland. Segir í Farsóttarfréttum að þetta segi ekki fyrir um hættu á smiti í viðkomandi löndum heldur endurspegli vinsældir þessara áfangastaða meðal íslenskra ferðamanna.

Tölur sýkladeildar leiða einnig í ljós að 93 greindust með kampýlóbaktersýkingu og er talið að tæplega helmingur þeirra sem sýktust, eða 41, hafi smitast hérlendis, 47 manns hafi orðið fyrir smiti erlendis og óvíst er um uppruna hjá fimm einstaklingum. Fleiri sýkjast á sumrin en það skýrist bæði af auknum ferðalögum til útlanda og eins af hinu að innlent smit er algengara á sumrin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×