Játar á sig fjársvik í Tryggingarstofnunarmáli 14. mars 2008 10:20
Fjölmennasta þingfesting í sögu Héraðsdóms Reykjavíkur var í morgun í máli ríkislögreglustjóra á hendur 20 manns sem ákærðir eru í tengslum við fjársvik innan Trygginarstofununar ríkisins sem talin eru nema um 76 milljónum króna.Höfuðpaur málsins, 45 ára gömul kona úr Reykjavík, er ákærð fyrir fjársvik í opinberu starfi, sem framin voru á tímabilinu 2. janúar 2002 til 9. júni 2006, á meðan konan starfaði sem þjónustufulltrúi hjá stofnuninni. Hún játar sök að öllu leyti í samræmi við verknaðarlýsingu.Samkvæmt ákæru Ríkislögreglustjóra framdi konan brotin með því að útbúa 781 tilhæfulausa kvittun fyrir útborgunum og blekkja gjaldkera Tryggingastofnunar til að greiða að tilefnislausu úr sjóðum stofnunarinnar á grundvelli þessara reikninga hátt í 76 milljónir króna. Ákæran gegn konunni er í 22 liðum.Nítján aðrir einstaklingar, karlar og konur á aldrinum 20 til 54 ára, eru ákærðir fyrir hylmingu en til vara peningaþvætti, með því að veita viðtöku á bankareikninga í þeirra vörslu, halda og ráðstafa fé sem var ávinningur af brotum þjónustufulltrúans þrátt fyrir að vera ljóst að um illa fengið fé var að ræða.Fjórir einstaklingar af þeim eru svo ákærðir fyrir hlutdeild í fjársvikum þjónustufulltrúans með því að fá samþykki frá 15 meðákærðu fyrir því að greiðslur sem sviknar voru út úr Tryggingastofnun ríkisins yrðu lagðar inn á bankareikning þeirra.Það komust færri að en vildu inn í salinn enda tuttugu manns ákærðir í málinu. Sumir þeirra eru með sama verjandann og því voru sextán verjendur í salnum. Þetta er fjölmennasti hópur ákærða í sögu héraðsdóms.Auk höfuðpaursins játuðu fjórir aðrir sakborningar sök í málinu að fullu. Fimm hinna ákærðu neituðu sök og tveir játuðu brot sín að hluta en neituðu öðru. Þrír þeirra ákærðu fóru fram á frest í málinu og fimm þeirra mættu ekki í fyrirtökuna.Þinghaldi verður fram haldið þann 18. apríl en þá munu þeir sem ekki tjáðu sig í dag lýsa yfir sekt eða sakleysi. Það á einnig við um þá sem ekki mættu fyrir dómara í dag.Stefnt er að því að aðalmeðferð í málinu fari fram um miðjan maí og sagði dómari í dag allar líkur á því að dómurinn verði fjölskipaður.
Mest lesið Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Innlent Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Innlent Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu Innlent „Þetta vita Einar og Björg“ Innlent Býr sig undir það versta en vonar það besta Innlent Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Innlent Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Innlent „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Innlent Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Innlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Írisi Elvu Tíu milljarða króna verk en ljósastýrð gatnamót Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Býr sig undir það versta en vonar það besta Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Bókstafir verði að tölustöfum Draugagangur, búrtíkur og öngull í rassi „Þetta vita Einar og Björg“ Skotið fór í gegnum handlegg og endaði í öxl Hafa þegar rætt við Daða Má um samgöngusáttmálann Taka ásýnd Varmár alvarlega og stöðva borframkvæmdir Mun dæma meirihlutann af verkunum Sjálfstæðismenn og Framsókn í eina sæng í Múlaþingi „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Kolbeinn tekur við af Bryndísi sem ráðuneytisstjóri Vilja verja pláss íslenskra sjómanna Meirihluti myndaður í Viðey og Hildur nýr borgarstjóri Hildur Björnsdóttir nýr borgarstjóri Áherslur meirihlutasáttmálans: Svari ákalli um breytingar Sjá meira