Innlent

Óku inn í Árbæjarapótek

Árbæjarapótek
Árbæjarapótek

Lögreglan rannsakar nú tilraun til innbrots í Árbæjarapótek í Hraunbæ í Reykjavík. Svo virðist sem þjófarnir hafi keyrt fólksbifreið á hurð apóteksins. Ekki liggur fyrir hvort einhverju var stolið.

Lögreglan fékk tilkynningu um innbrotið í morgun og er á staðnum við rannsókn. Að sögn lögreglunnar hefur ekki fengist staðfest hvort einhverju var stolið og er uppákomin því einungis tilraun til innbrots að svo stöddu. Lögreglan leitar fólksbifreiðarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×