Tekjuafgangur hins opinbera um 67 milljarðar í fyrra 14. mars 2008 09:20
Tekjuafgangur hins opinbera í fyrra reyndist nærri 67 milljarðar króna samkvæmt útreikningum Hagstofu Íslands. Til samanburðar reyndist tekjuafgangurinn árið 2006 um 74 milljarðar eða sjö milljörðum króna meiri. Tekjuafgangurinn í fyrra nam 5,2 prósentum af landsframleiðslu og tæpum ellefu prósentum af tekjum hins opinbera. Tölur Hagstofunnar sýna enn fremur að tekjuafgangurinn reyndist tæplega 18 milljarðar króna á fjórða ársfjórðungi síðasta árs en til samanburðar var afgangurinn nærri 24 milljarðar á sama tíma árið 2006 og munar þar því nærri sex milljörðum. Heildartekjur hins opinbera á árinu 2007 námu 617,5 milljörðum króna og hækkuðu um ríflega 10 prósent milli ára. Sem hlutfall af landsframleiðslu mældust þær 48,3 prósent samanborið við 48 prósent árið 2006. Heildarútgjöld hins opinbera námu hins vegar um 551 milljarði króna eða 43,1 prósenti af landsframleiðslu og hækkuðu um 13,2 prósent frá árinu 2006. Fjárfesting hins opinbera var um 55 milljarðar króna 2007 og hækkaði verulega milli ára eða um 20 prósent. Tekjuafkoma ríkissjóðs og almannatrygginga var jákvæð um 60,6 milljarða króna á árinu öllu samanborið við 70,1 milljarð króna árið 2006. Tekjuafkoma sveitarfélaganna var einnig jákvæð á 4. ársfjórðungi 2007 eða um 1,2 milljarða króna og því hagstæðari en á sama tíma 2006. Áætlað er að sveitarfélögin skili 5,9 milljarða króna tekjuafgangi á árinu 2007 samanborið við 3,8 milljarða króna 2006.
Mest lesið „Svona rosaleg vanlíðan getur ekki staðið endalaust“ Innlent Sláandi niðurstöður um afstöðu Dana til sambandsins við Bandaríkin Erlent Segir vonbrigðin með prinsessuna rista djúpt Erlent Öðru embætti falið að rannsaka andlátið Innlent Þrettán ára synti fjóra kílómetra til að bjarga fjölskyldu sinni Erlent Rétt var að svipta Guðmund Karl lækningaleyfinu Innlent Tveir handteknir í tengslum við andlát í Vestmannaeyjum Innlent Átta frambjóðendur VG berjast um þrjú sæti á lista í Reykjavík Innlent Ákærður í 38 liðum og löng biðröð fyrir utan réttinn í Osló Erlent Nakinn á rölti og hrækt í hár ökumanns Innlent Fleiri fréttir Kona kastaði flösku í höfuð manns Öðru embætti falið að rannsaka andlátið Rétt var að svipta Guðmund Karl lækningaleyfinu Átta frambjóðendur VG berjast um þrjú sæti á lista í Reykjavík Litlar breytingar á fylgi flokkanna Nakinn á rölti og hrækt í hár ökumanns „Svona rosaleg vanlíðan getur ekki staðið endalaust“ Þriðjungi finnst erfitt að fylgjast með fréttum Segir loðnuna allsstaðar kveikja vertíðarstemningu „Þá kemur bara allt í einu högg“ Tveir handteknir í tengslum við andlát í Vestmannaeyjum Gagnrýnir stjórnvöld um sinnuleysi vegna fæðuöryggis þjóðarinnar Brottvísanir verði beittasta vopnið Fjölskyldunni vísað til Rússlands en örlög föðurins óljós Fækka sýslumönnum í einn Óttaðist um líf sitt þegar árásin stóð sem hæst Loka framleiðslueldhúsi vegna listeríu Eygló landpóstur greiðir 45 þúsund krónum meira: „Er ekki venjulegt fólk á landsbyggðinni?“ Einum Bifrastarkennaranna sagt upp fyrir ótengdar sakir Vilja ekki óundirbúnar fyrirspurnir í borgarstjórn Kári Stefánsson fordæmir vinnubrögð Moggans Vilja kengbeygja kvenfélagið og krefjast Ketiláss alls Skýr skilaboð um að það borgi sig ekki að leita til Íslands Lögregla fékk send myndbönd af árásinni frá vegfarendum Boðar aðgerðir gegn brotastarfsemi Samstillt þingnefnd vill taka ESB út úr orðalagi nýrrar stefnu Um 125 börn á þyngdarstjórnunarlyfjum og 500 með fitulifur Gagnagrunnur heimilisfanga ICE-liða hýstur á Íslandi Dyravörður tók gest kverkataki Geta stórbætt þjónustu fyrir þau sem greinast með krabbamein Sjá meira